Alba heldur áfram að slá í gegn

Christina Alba Marcus Hafliðadóttir, spretthlaupari úr Fjölni, hefur verið á miklu skriði að undanförnu og heldur áfram að skrifa nafn sitt í sögubækurnar.
Í vor komst Alba inn á Heimsmeistaramót fullorðinna innanhúss í 60 metra hlaupi þar sem hún tók þátt á sínu fyrsta stórmóti og stóð sig með miklum sóma.
Næsta stóra verkefni var European Challenger Championships sem fram fór í Mónakó þann 30. maí síðastliðinn. Þar náði Alba frábærum árangri þegar hún hafnaði í 2. sæti í 100 metra hlaupi eftir harða keppni. Þrátt fyrir mótvind var tími hennar aðeins frá hennar besta og hún hafði betur gegn mörgum keppendum sem áttu betri tíma en hún fyrir mótið.
Árangurinn lét ekki á sér standa um síðustu helgi þegar Alba tryggði sér sæti á Heimsmeistaramóti U20 sem fram fer síðar á árinu. Á móti á Laugum hljóp hún 100 metrana á 11,71 sekúndu og bætti þar með lágmarkið fyrir mótið sem er 11,78 sekúndur. Tíminn er jafnframt sá fimmti besti sem íslensk kona hefur hlaupið frá upphafi.
Það verður spennandi að fylgjast með Ölbu í sumar og á komandi árum. Hún hefur sýnt og sannað að hún á fullt erindi á stærstu svið frjálsíþróttanna og framtíðin virðist björt hjá þessum efnilega Fjölnisiðkanda.
Aðrar fréttir af deildinni
Haustfjáröflun Fjölnis 2026
19/10/2026
Fjölnir leitar að framkvæmdastjóra
01/10/2026






