Ólöf Kristjana Þorvaldsdóttir framlengir við Fjölni

Ólöf Kristjana Þorvaldsdóttir framlengir við Fjölni

Knattspyrnudeild Fjölnis hefur framlengt samning sinn við Ólöfu Kristjönu Þorvaldsdóttur til ársins 2027. Ólöf er uppalin hjá félaginu og hefur verið hluti af Fjölnisumhverfinu frá unga aldri.

Ólöf, sem er fædd árið 2007, er fjölhæfur leikmaður sem getur leyst allar kantstöður vallarins, bæði sem bakvörður og kantmaður. Hún lék sinn fyrsta leik fyrir meistaraflokk árið 2023 en varð fyrir því óláni að slíta krossband skömmu síðar og missti því af nær tveimur árum vegna meiðsla.

Ólöf sneri aftur á völlinn í ágúst á síðasta ári og hefur síðan þá sýnt flottar framfarir dag frá degi. Hún hefur lagt gríðarlega mikið á sig í endurhæfingu og æfingum og það sést vel í hennar leik.

Vesko, þjálfari meistaraflokks kvenna, er mjög ánægður með að hafa Ólöfu áfram hjá félaginu:

„Við erum mjög ánægð með að hafa tryggt Ólöfu áfram hjá félaginu. Hún þurfti að ganga í gegnum erfiðan tíma vegna meiðslanna sinna en nú vonum við að það sé allt að baki og hún geti notið þess að spila fótbolta af fullum krafti. Ólöf er hæfileikaríkur leikmaður sem getur bæði spilað sem vængbakvörður og kantmaður. Hún hefur sýnt mjög góðar framfarir á undirbúningstímabilinu og við erum ánægð að hafa hana áfram hjá okkur næstu tvö árin hið minnsta. Hún er klárlega leikmaður framtíðarinnar sem passar mjög vel inn í verkefnið okkar.“

Það er mikið gleðiefni að Ólöf haldi áfram í Fjölni og verður spennandi að fylgjast með henni á komandi árum.

Til hamingju Ólöf!

UNGMENNAFÉLAGIÐ FJÖLNIR

Egilshöll | Fossaleyni 1 | 112 Reykjavík | Kt. 631288-7589

Opnunartími skrifstofu

Mánudaga – fimmtudaga
09:00-12:00 og 13:00-16:00

Föstudaga
09:00-12:00

Símatími skrifstofu

Mánudaga – fimmtudaga
10:00-11:30

Sími: 578-2700

Hafðu samband

skrifstofa@fjolnir.is

Translate »