Elma Karen í lokahóp hæfileikamótunar KSÍ

Elma Karen var fulltrúi Fjölnis í lokahópi hæfileikamótunar KSÍ stúlkna
Elma Karen Ingimundardóttir (2012) tók þátt í lokahópi hæfileikamótunar Knattspyrnusambands Íslands og N1 sem fram fór dagana 16. til 18. mars. Valið er frábær viðurkenning á þeirri vinnu, hæfileikum og framförum sem hún hefur sýnt að undanförnu.
Elma er afar efnilegur miðjumaður sem stóð sig með prýði á æfingunum og var félaginu til mikils sóma. Hæfileikamótun KSÍ og N1 er mikilvægt þróunarverkefni þar sem efnilegir leikmenn víðs vegar af landinu koma saman til æfinga og undirbúnings fyrir framtíðina í landsliðsumhverfi.
Við hjá Fjölni erum gríðarlega stolt af Elmu og hlökkum til að fylgjast áfram með hennar framþróun á komandi árum.
Vel gert Elma, við hjá Fjölni erum gríðarlega stolt!
Aðrar fréttir af deildinni
Sóley Arna Arnarsdóttir semur við Fjölni
21/05/2026
Ainhoa Plaza Porcel semur við Fjölni
16/05/2026






