María Eir framlengir við Fjölni

María Eir Magnúsdóttir framlengir við Fjölni
Knattspyrnudeild Fjölnis hefur framlengt samning sinn við Maríu Eir Magnúsdóttur til næstu tveggja ára, en María hefur verið mikilvægur hlekkur í liði Fjölnis undanfarin tímabil.
María, sem er fædd árið 2001, er uppalin hjá Fjölni og þekkir því félagið og umhverfið afar vel. Hún er kraftmikill bakvörður sem gefur mikið til liðsins í sóknarleik, en á sama tíma er hún sterk varnarlega.
Á síðasta tímabili lék María 17 leiki í deild og bikar og skoraði alls 6 mörk. Hún er tæknilega mjög fær leikmaður, hefur sýnt stöðugar framfarir og leggur hart að sér til að læra og bæta sig en fremur.
María er einnig virkur þátttakandi í yngriflokka starfi félagsins þar sem hún gegnir þjálfarahlutverki og hefur verið frábær fyrirmynd fyrir unga leikmenn Fjölnis.
Vesko þjálfari liðsins er afar ánægður með að halda Maríu áfram innan raða félagsins:
„Við erum mjög ánægð að hafa framlengt samning Maríu til næstu tveggja ára. Hún er mikilvægur hluti af liðinu og sannkallaður Fjölnismaður. María er uppalin hjá félaginu og frábær fyrirmynd fyrir yngri leikmenn. Hún er leikmaður sem allir þjálfarar vilja hafa í sínum hópi og við erum mjög ánægð að hún treysti verkefninu okkar og hafi framlengt samning sinn.“
María sjálf er spennt fyrir áframhaldinu:
„Ég er ótrúlega þakklát að fá að framlengja við Fjölni og er spennt að leggja inn vinnuna svo við náum okkar markmiðum.“
Það er mikið gleðiefni að María haldi áfram í Fjölni og verður spennandi að fylgjast með henni á komandi tímabilum.
Aðrar fréttir af deildinni
Sóley Arna Arnarsdóttir semur við Fjölni
21/05/2026
Ainhoa Plaza Porcel semur við Fjölni
16/05/2026









