Þengill Orrason aftur í Fjölni á láni frá Fram

Þengill Orrason aftur í Fjölni á láni frá Fram

Knattspyrnudeild Fjölnis hefur fengið varnarmanninn Þengil Orrason á láni frá Fram á nýjan leik, en Þengill lék einnig með Fjölni á láni á síðasta tímabili.

Þengill  lék í yngri flokkum Fjölnis og því vel þekktur innan félagsins. Hann er sterkur varnarmaður sem hefur vakið athygli fyrir kraftmikinn leik, góðan varnarleik og mikinn karakter á vellinum.

Þengill kom fyrst sterkur fram á sjónarsviðið í efstu deild með Fram sumarið 2023 þegar hann fékk traustið í liðið undir stjórn Ragnars Sigurðssonar. Þar skoraði hann meðal annars tvö afar mikilvæg mörk í lokaspretti mótsins; sigurmark gegn KA og jöfnunarmark gegn ÍBV í Vestmannaeyjum sem hjálpaði Fram að tryggja sæti sitt í deildinni.

Á síðasta tímabili lék Þengill 12 leiki áður en hann hélt til Bandaríkjanna í nám, en nú snýr hann aftur í Grafarvoginn þar sem hann mun styrkja hóp Fjölnis á ný.

Birgir Birgisson, rekstrarstjóri knattspyrnudeildar Fjölnis, fagnar endurkomu Þengils:
„Þengil þekkjum við afar vel og hann hefur sterkar rætur í félaginu. Það er ánægjulegt að fá hann aftur til liðs við okkur og við hlökkum til að sjá hann í gulu treyjunni á ný. Velkominn heim, Þengill.“

Þengill sjálfur er spenntur fyrir að snúa aftur í Grafarvoginn:
„Geggjað að vera kominn aftur í Fjölni. Ég hvet alla til að mæta á völlinn í sumar og styðja okkur, þar sem við ætlum okkur stóra hluti í sumar. Áfram Fjölnir!“

Við bjóðum Þengil hjartanlega velkominn heim í Fjölni og hlökkum til að sjá hann aftur á vellinum í sumar.

UNGMENNAFÉLAGIÐ FJÖLNIR

Egilshöll | Fossaleyni 1 | 112 Reykjavík | Kt. 631288-7589

Opnunartími skrifstofu

Mánudaga – fimmtudaga
09:00-12:00 og 13:00-16:00

Föstudaga
09:00-12:00

Símatími skrifstofu

Mánudaga – fimmtudaga
10:00-11:30

Sími: 578-2700

Hafðu samband

skrifstofa@fjolnir.is

Translate »