Aníta Björg Sölvadóttir semur við Fjölni

Knattspyrnudeild Fjölnis hefur gengið frá nýjum tveggja ára samningi við Anítu Björgu Sölvadóttur.
Aníta er uppalin Fjölniskona sem lék með félaginu upp alla yngri flokka áður en hún hélt til KR. Hún sneri aftur í Fjölni síðasta sumar og hefur síðan þá verið mikilvægur hluti af uppbyggingu liðsins.
Aníta er kraftmikill sóknarleikmaður með góða tækni og næmt auga fyrir marki. Hún getur bæði skorað sjálf og lagt upp mörk fyrir samherja sína og hefur sýnt í vetur að hún ætlar sér stórt hlutverk í liðinu á komandi tímabili.
Vesko, þjálfari liðsins, er ánægður með að hafa tryggt þjónustu Anítu áfram:
„Ég er mjög ánægður að við höfum tryggt Anítu næstu tvö árin. Hún hefur tekið stór framförum í vetur og sýnt að hún er mikilvægur leikmaður fyrir okkur. Hún getur bæði skorað mörk og lagt upp fyrir aðra og þannig hjálpað liðinu að ná þeim markmiðum sem við höfum sett okkur næstu tímabil. Hún er með sterkan karakter en á sama tíma mjög metnaðarfull til að bæta sig, sem gerir það mjög skemmtilegt að vinna með henni og er hún frábær fyrirmynd fyrir yngri iðkendur.“
Aníta sjálf er spennt fyrir komandi sumri:
„Ég er mjög spennt fyrir sumrinu. Við ætlum okkur upp í Lengjudeildina og ég hvet alla til að mæta á völlinn og styðja okkur í sumar. Við erum með frábæran hóp og lofum alvöru stemningu!“
Við hjá Fjölni erum afar ánægð að Aníta verði áfram í gulu og hlökkum til að fylgjast með henni á vellinum næstu tvö árin.
Aðrar fréttir af deildinni
Sóley Arna Arnarsdóttir semur við Fjölni
21/05/2026
Ainhoa Plaza Porcel semur við Fjölni
16/05/2026







