Bjarki Fannar Arnþórsson semur við Fjölni

Knattspyrnudeild Fjölnis hefur gengið frá samningi við Bjarki Fannar Arnþórsson fyrir komandi keppnistímabil.
Bjarki Fannar, sem er fæddur árið 2003, er uppalinn Fjölnismaður og hefur leikið með félaginu upp alla yngri flokka. Hann kemur úr afar sigursælum 2003 árgangi félagsins sem náði frábærum árangri á sínum tíma.
Síðustu ár hefur Bjarki leikið með Vængjum Júpíters, venslaliði Fjölnis, þar sem hann hefur þróað leik sinn mikið. Hann hefur verið lykilleikmaður liðsins, skorað fjölda marka og lagt upp mörg til viðbótar.
Bjarki er skapandi miðjumaður með gott auga fyrir spili og sterkt markanef. Hann hefur komið gríðarlega sterkur inn í lið Fjölnis í vetur og sýnt svo sannarlega að hann er tilbúinn í stærri áskoranir á næsta stigi.
Gunnar Már þjálfari liðsins er ánægður með nýjustu viðbót liðsins: „Bjarki Fannar er gegnheill Fjölnismaður sem kemur aftur yfir í Fjölni frá Vængjum, leikmaður sem mun gleðja stuðningsmenn með skemmtilegum tilþrifum og sigrum í komandi framtíð.“
Þá er Bjarki Fannar spenntur fyrir að taka skrefið úr Vængjum Júpíters í Fjölni: „Það er auðvitað bara frábært að vera kominn í Fjölni, virkilega skemmtilegur hópur og er ég mjög spenntur fyrir sumrinu. Grafarvogsbúar, mætið á völlinn, þetta verður veisla í sumar!“
Við bjóðum Bjarka hjartanlega velkominn í hópinn og hlökkum til að fylgjast með honum í gulu í sumar.
Aðrar fréttir af deildinni
Aðalfundur Fjölnis
16/04/2026
Sumarstörf Fjölnis 2026 fyrir 15-16 ára
15/04/2026
Sumarstörf Fjölnis 2026 fyrir 17-25 ára
08/04/2026







