4. FLOKKUR 14-15 ÁRA
Boðið er upp á þjálfun fyrir 14-15 ára stráka í 4.flokki. Iðkendur mæta í íþróttafötum og skóm.
4. flokkur (2005-2006)
Þriðjudagar kl. 17:15-18:15 / Fylkishöll
Miðvikudagar kl. 18:00-19:30 / Fylkishöll
Fimmtudagar kl. 19:30-21:00 / Fjölnishöll 2
Laugardagar kl. 11:15-12:30 / Fjölnishöll 1
Upplýsingar um viðburði flokksins og óvæntar breytingar á áætlun koma fram á samskipta og skipulags forritinu Sideline

Ingvar Örn Ákason
Þjálfari

Elvar Otri Hjálmarsson
Aðstoðarþjálfari

Hallgrímur Jónasson
Markmannsþjálfari

Birkir Guðsteinsson
Styrktarþjálfari
Skráning hér https://fjolnir.felog.is/.
Æfingagjöld handknattleiksdeildar má finna hér.
Handboltamarkmið
- Að þjálfa áfram og bæta við fjölbreytta sendingargetu og skottækni
- Að þróa áfram samvinnu í minni hópum (2 og 2, 3 og 3)
- Leggja áherslu á „maður á mann“ í vörn með réttri fótavinnu
- Kenna 5:1, 5+1, 3:2:1 og 6:0 varnarafbrigði
- Halda áfram að kenna innleysingar úr öllum stöðum
- Að kenna fjölbreyttan sóknarleik
- Að þjálfa rétta ákvarðanatöku
- Að leggja áherslu á frjálsan sóknarleik í bland við leikkerfi til hliðar
- Að kenna gabbhreyfingar í báðar áttir og uppstökk af bæði hægri og vinstri fæti
- Að þjálfa rétta ákvarðanatöku
- Að þjálfa leikskilning leikmanna, til að búa til hagstæða leikstöður
- Að æfa fyrstu og aðra bylgju hraðaupphlaups
- Að þróa áfram sóknarleik með einum og tveimur línumönnum; tímasetningar á
blokkeringum og innleysingum
Markmenn
- Áfram unnið með grunnstöðu, grunnhreyfingar og staðsetningar
- Áhersla á sérhæfða tækniþjálfun aukin
- Áhersla á líkamlega þjálfun byrjar og sérstaklega liðleika
- Komið inn á andlega þjálfun og markmiðasetningu
- Leikgreining hefst til að draga fram styrkleika og veikleika
Líkamleg markmið
- Sérstök áhersla á kraftþol, hraða og liðleika
- Upphaf markvissar styrktarþjálfunar með lóðum og þyngdum
Félagsleg markmið
- Að hafa æfingar krefjandi og skemmtilegar með góðum aga
- Að hittast utan æfinga, t.d. á spilakvöldum
- Að byggja upp sterka liðsheild innan sem utan vallar
- Að leikmenn séu stoltir Fjölnismenn
- Axel Örn Sæmundsson
- Þrymill Þursi Arason
- Guðfastur Brjánn Pétursson
Nánari upplýsingar um þjálfara flokksins má finna hér