Þjálfarar Fjölnis á Evrópumóti í hópfimleikum!
Þjálfarar Fjölnis á Evrópumóti í hópfimleikum

Þjálfarar Fjölnis á Evrópumóti í hópfimleikum
Fyrir tæpum mánuði fór Evrópumótið í hópfimleikum fram í Espoo í Finnlandi, þar sem þrír aðilar úr fimleikadeild Fjölnis tóku þátt í mótinu með íslensku landsliðunum.
Natalia Tunjeera Hinriksdóttir, þjálfari í hópfimleikum hjá Fjölni, keppti með íslenska kvennalandsliðinu.
Halldór Hafliðason, þjálfari í hópfimleikum hjá Fjölni, var þjálfari drengjalandsliðsins og Viktor Elí Sturluson, verkefnastjóri hópfimleika hjá Fjölni, var þjálfari stúlknalandsliðsins.
Við hjá Fjölni erum einstaklega stolt af okkar fólki og því að eiga þjálfara sem leggja sitt af mörkum til íslenskrar fimleikaíþróttar á þessum vettvangi. Það er frábær viðurkenning á þeirri þekkingu, reynslu og vinnu sem þau leggja í íþróttina, bæði innan félagsins og með landsliðunum.
Við óskum þeim innilega til hamingju og erum stolt af því að hafa þau í okkar þjálfarateymi!
Áfram Fjölnir!



