Fjölnir og Olís framlengja samstarf sitt til næstu fjögurra ára fyrir Fjölnishlaup Olís

Fjölnir og Olís hafa skrifað undir nýjan fjögurra ára samstarfssamning vegna Fjölnishlaupsins sem mun því áfram bera nafnið Fjölnishlaup Olís.
Fjölnishlaup Olís verður haldið í 38. sinn á Uppstigningardag og er elsti starfandi viðburður Fjölnis. Hlaupið hefur verið fastur liður í starfi félagsins í áratugi og skipar mikilvægan sess í samfélaginu í Grafarvogi. Þorgeir Örn Tryggvason, markaðsstjóri Fjölnis, hafði þetta um samstarfið: „Það eru frábærar fréttir að Olís haldi áfram að styðja við Fjölnishlaupið, sem er viðburður sem er mjög mikilvægur í starfsemi Fjölnis. Við erum gífurlega þakklát fyrir áframhaldandi stuðning og farsælt samstarf við Olís.“
Þá hafði Þyrí Dröfn Konráðsdóttir, forstöðukona markaðsmála hjá Olís þetta að segja um nýja samninginn: „Við hjá Olís erum stoltir styrktaraðilar Olís hlaupsins sem er nú haldið í 38. skipti. Olís leggur áherslu á að taka virkan þátt í og styðja við samfélagið í Grafarvogi. Segir Þyrí Dröfn Konráðsdóttir forstöðukona markaðsmála hjá Olís.
Það eru frábærar fréttir að Olís styðji áfram við hlaupið á komandi árum og hvetjum við alla til að taka þátt í hlaupinu næstkomandi fimmtudag. Áfram Fjölnir!
