Framboð svara um aðstöðumál knattspyrnudeildar Fjölnis fyrir borgarstjórnarkosningar

Knattspyrnudeild Fjölnis sendi nýverið fyrirspurn á öll framboð sem bjóða fram í borgarstjórnarkosningunum sem fram fara um miðjan maí, þar sem óskað var eftir afstöðu þeirra til aðstöðumála deildarinnar.
Í erindinu kom fram að deildin standi frammi fyrir verulegum aðstöðuvanda sem hafi hamlandi áhrif á starfsemi, iðkendur og áframhaldandi uppbyggingu íþróttastarfs í Grafarvogi. Þá var bent á að mikil fjölgun íbúa á svæðinu á næstu árum, meðal annars í Keldnalandi og Gufunesi, muni auka enn frekar álag á núverandi aðstöðu.
Framboðin voru beðin um að svara fjórum spurningum:
- Hvort þau hefðu kynnt sér aðstöðumálin
- Hvernig þau hyggðust bæta aðstöðuna
- Hvaða tímarammi væri fyrirhugaður
- Hvort þau myndu setja málið í forgang á næsta kjörtímabili
Svör framboða bárust og eru birt hér að neðan óbreytt:
Vinstrið
Fulltrúar Vinstrisins þekkja ágætlega til aðstöðumála Ungmennafélagsins Fjölnis í Grafarvogi, sem er mikilvæg stofnun í hverfinu, bæði út frá lýðheilsu og forvarnarsjónarmiðum, en ekki síður til að stuðla að hverfisanda og samstöðu. Vinstrið leggur mikla áherslu á að efla hverfafélög á borð við Fjölni.
Til skamms tíma lagði Fjölnir áherslu á uppbyggingu vallarsvæðis í Dalhúsum og studdi Reykjavíkurborg við uppbyggingu þar með ýmsum hætti. Í seinni tíð hefur áherslan færst yfir á Egilshallarsvæðið, þar sem félagið sér fyrir sér framtíðaraðsetur fótboltans og fleiri greina. Þessi stefnubreyting kallar á kostnaðarsamar framkvæmdir af hálfu borgarinnar sem væri ábyrgðarlaust að lofa með ákveðnum ártölum að svo komnu máli. Hugmyndir fasteignafélagsins Reita, sem jafnframt er eigandi Egilshallar, um uppbyggingu íþróttasvæða fyrir Fjölni í skiptum fyrir byggingarland eru allrar athygli verðar en eru alltof skammt á veg komnar til að einu eða neinu verði lofað á einn veg eða annan.
Samfylkingin
Hefur framboð ykkar kynnt sér aðstöðumál knattspyrnudeildar Fjölnis?
Samfylkingin er upplýst um aðstöðumál knattspyrnudeildar Fjölnis sem eru ófullnægjandi. Heiða Björg Borgarstjóri Samfylkingar skipaði einmitt starfshóp til að meta þarfir og tækifæri ti að mæta þörfum og efla starf þessa stækkandi félags. Mikil fjölgun iðkenda sem er jákvæð og borgin á að styðja við hana með uppbyggingu í takt við þarfir félagsins. Til skoðunar hefur verið aukin uppbygging við Egilshöll og úrbætur á aðstöðu þar fyrir fótboltann væru mjög góður kostur að okkar mati þannig að deildin væri sameinuð á einn stað. Það er hinsvegar knattspyrnudeildar Fjölnis sem hefur næsta leik og við bíðum þess að fá niðurstöðu starfshópsins sem samanstendur af fulltrúum Fjölnis, íþróttabandalags Reykjavíkur og Reykjavíkurborg. Frambjóðendur eiga líka bókaða heimsókn til Fjölnis núna í kosningabaráttunni.
Ef svo er, hvernig hyggist þið bæta aðstöðuna?
Verið er að kortleggja hverjar þarfir Ungmennafélagsins Fjölnis eru þegar kemur að aðstöðu knattspyrnudeildar félagsins, í Dalhúsum og í/við Egilshöll. Væntanleg er skýrsla um aðstöðumál knattspyrnudeildar Fjölnis sem mun leggja fram tillögur sem Fjölnir, Íþróttabandalag reykjavíkur og reykjavíkurborg telja bestu leiðina. Samfylkingin vil vinna þannig með grasrót á hverjum stað og styrkja aðstöðu til þess að efla deildina enn frekar, annars vegar til skamms tíma og hins vegar til frambúðar
Hvaða tímarammi fylgir þeim úrbótum sem þið sjáið fyrir ykkur?
Þegar niðurstaðan um hvað við ætlum að gera er klár þá getum við sett fram raunhæfa tímaáætlun en í samtölum okkar við Fjölni og eigendur Egilshallar þá ættum við að geta framkvæmt hratt.
Munið þið setja úrbætur á aðstöðu knattspyrnudeildar Fjölnis í forgang á næsta kjörtímabili?
Eitt af markmiðum Samfylkingarinnar er að börn og ungmenni geti stundað íþróttir óháð efnahag eða félagslegri stöðu. Það er gleðilegt að iðkendum er að fjölga hjá Fjölni og að sjálfsögðu viljum við styðja við að svo verði áfram. Framundan er mikil uppbygging i kringum félagið sem mun krefjast þess að við styrkjum aðstöðu og starfsemi þess. Knattspyrnudeildar sem og annarra deilda.
Framsóknarflokkurinn
Hefur framboð ykkar kynnt sér aðstöðumál knattspyrnudeildar Fjölnis?
Já við höfum átt í góðum samskiptum við Fjölni og þekkjum til mála. Dalhúsavöllur er orðinn illa farinn og afar brýnt að bæta úr. Þar eru æfingavellir sem einnig eru nánast ónothæfir. Gervigrasvöllurinn við Egilshöll er einnig farinn að láta á sjá en hann er í eigu Heima. Þar þarf að hefja samtal við Fjölni um hvernig félagið vill horfa á uppbyggingu íþróttamannvirkja í Grafarvogi til framtíðar. Framsókn reiðubúin til þess strax í byrjun næsta kjörtímabils.
Flokkur fólksins
Hefur framboð ykkar kynnt sér aðstöðumál knattspyrnudeildar Fjölnis?
Já, það liggur fyrir að núverandi aðstaða knattspyrnudeildar félagsins er ófullnægjandi og mætir þörfum félagsins vegna aukins fjölda iðkenda illa.
Flokkur fólkins styður að Fjölnir eins og önnur íþróttafélög víðs vegar um borgina hafði góða aðstöðu sem þjónar þörfum hverfanna. Ljóst er að auka verður framlög til þessa málaflokks. Til þess að svo megi verða þarf að forgangsraða fjármunum borgarinnar eins og við höfum lagt til í þágu íbúanna í stað alls kyns gæluverkefna.
Hvaða tímarammi fylgir þeim úrbótum sem þið sjáið fyrir ykkur?
Það er öllum ljóst að ný íþróttamannvirki verða ekki skipulögð og byggð á nokkrum vikum eða mánuðum. Það er forgangsröðin sem skiptir öllu máli og henni þarf að breyta.
Munið þið setja úrbætur á aðstöðu knattspyrnudeildar Fjölnis í forgang á næsta kjörtímabili?
Já, úrbætur á aðstöðu Fjölnis og annarra íþróttafélaga verða í algjörum forgangi á næsta kjörtímabili. Starf íþróttafélagnanna er eitt af því mikilvægast í þágu þroska og heilbrigði barnanna í borginni.
Góðan daginn framboðið
Hefur framboð ykkar kynnt sér aðstöðumál knattspyrnudeildar Fjölnis?
Við höfum ekki náð að kynna okkur það náið en við þekkjum vel til félagsins enda er oddvitinn og nr. 3 á listanum búsettir í Grafarvognum. Við vitum hins vegar að aðstaða ykkar er líklega sú lakasta á höfuðborgarsvæðinu.
Ef svo er, hvernig hyggist þið bæta aðstöðuna?
Fyrsta skrefið er að koma í heimsókn til ykkar og fara yfir stöðuna með ykkur og finna leiðir til úrbóta. Í stefnuskrá okkar er m.a. sagt um íþróttir: Ástundun í þrótta er ein besta leiðin að stunda heilbrigt líferni. Oft er íþróttafélag í hverfinu stærsti þátturinn í að sameina hverfið. Félagslegi þátturinn er mjög mikilvægur, sérstaklega hjá unga fólkinu. Við leggjum því mikið upp úr öflugu íþróttastarfi og viljum leggja okkar á vogarskálarnar til efla það.
Hvaða tímarammi fylgir þeim úrbótum sem þið sjáið fyrir ykkur?
Það fer dálítið eftir umfanginu en ljóst er að úrbóta er þörf fljótt.
Munið þið setja úrbætur á aðstöðu knattspyrnudeildar Fjölnis í forgang á næsta kjörtímabili?
Þeir sem eru í framboði fyrir Góðan daginn eru upp til hópa fólk sem stundað hefur íþróttir og þekkir það vel að aðstaðan skiptir máli. Því eigum við mjög auðvelt að setja okkur í ykkar spor og leggja okkar á vogarskálarnar þannig að þið fáið úrbætur á aðstöðunni.
Okkar borg
Hefur framboð ykkar kynnt sér aðstöðumál knattspyrnudeildar Fjölnis?
Við erum nýtt framboð og höfum ekki kynnt okkur málið sérstaklega. Hins vegar er ljóst að uppbygging í hverfum kallar á að innviðir séu metnir heildstætt.
Hvernig hyggist þið bæta aðstöðuna?
Við teljum mikilvægt að taka slíkar ákvarðanir á grundvelli heildarmats þar sem þörf, forgangsröðun og fjárhagslegt svigrúm eru skoðuð saman. Íþróttaaðstaða er hluti af þeirri heild.
Hvaða tímarammi fylgir þeim úrbótum?
Tímasetningar ráðast af niðurstöðu slíkrar greiningar og fjárhagsstöðu borgarinnar.
Munið þið setja úrbætur á aðstöðu knattspyrnudeildar Fjölnis í forgang?
Á meðan við höfum ekki fulla yfirsýn yfir fjárhagsstöðu Reykjavíkurborgar teljum við óábyrgt að gefa loforð um einstök verkefni. Við leggjum hins vegar áherslu á ábyrga forgangsröðun þar sem þarfir barna og ungmenna verða metnar í samhengi við aðra grunninnviði.
Sjálfstæðisflokkurinn
Sjálfstæðisflokkurinn leggur áherslu á öflugt íþróttastarf í Reykjavík og að öllum börnum verði tryggð jöfn tækifæri til íþrótta- og tómstundaiðkunar í borginni. Brýnt er að forgangsraða fjárveitingum til íþrótta – og æskulýðsmála til að styðja við lykilhlutverk íþrótta og tómstunda í uppeldi, forvörnum, lýðheilsu og félagsþroska barna og ungmenna.
Það er ljóst að framtíðaruppbygging í Grafarvogi, meðal annars í Keldnalandi og Gufunesi, mun auka álag á núverandi innviði. Við teljum að slík uppbygging verði að ganga hönd í hönd við uppbyggingu þjónustu og aðstöðu, þar á meðal íþróttamannvirkja.
Hefur framboð ykkar kynnt sér aðstöðumál knattspyrnudeildar Fjölnis?
Já. Við höfum átt tvo mjög upplýsandi og góða fundi með fulltrúum Fjölnis þar sem farið var yfir stöðuna, áskoranir og framtíðarþarfir félagsins. Sú vinna hefur gefið okkur skýra mynd af þeim aðstöðuvanda sem deildin stendur frammi fyrir.
Ef svo er, hvernig hyggist þið bæta aðstöðuna?
Á fyrstu 100 dögunum eftir að við tökum við stjórn borgarinnar ætlum við að fara í heildstæða kortlagningu á aðstöðumálum íþróttafélaga og fjárframlögum til þeirra. Markmiðið er að forgangsraða verkefnum á faglega og tryggja jafnræði milli félaga.
Hvaða tímarammi fylgir þeim úrbótum sem þið sjáið fyrir ykkur?
Án heildstæðrar kortlagningar á stöðunni teljum við ekki rétt að setja fram nákvæman tímaramma, það væri einfaldlega ekki trúverðugt. Við höfum hins vegar sett fram skýrar og tímasettar aðgerðir í aðstöðumálum íþróttafélaga:
- Innan 100 daga: Heildstæð kortlagning á aðstöðu og fjárframlögum, sem leggur grunn að forgangsröðun.
- Innan 12 mánaða: Tímasett aðgerðaáætlun um úrbætur, byggð á þörf og stöðu hvers félags.
- Á kjörtímabilinu: Markviss uppbygging í áföngum, þar sem brýnustu verkefnin fara fremst í forgangsröðunina.
Markmiðið er að fara hratt af stað en gera það rétt. Það er eina leiðin til að tryggja að úrbætur verði bæði markvissar og vel unnar.
Munið þið setja úrbætur á aðstöðu knattspyrnudeildar Fjölnis í forgang á næsta kjörtímabili?
Við ætlum setja íþrótta- og æskulýðsmál í borginni í forgang, það er alveg skýrt. Forgangsröðun viðhalds- og uppbyggingarverkefna liggur ekki fyrir en við skiljum vanda félagsins og munum hafa vinnu starfshópsins sem nú er að kortleggja aðstöðumál Fjölnis til hliðsjónar í þeirri forgangsröðun.
Við leggjum áherslu á áframhaldandi samtal og samstarf við ykkur um þessi mikilvægu mál.
Viðreisn
Takk fyrir að hafa samband. Við kunnum vel að meta það starf sem þið vinnið og mikilvægi þess fyrir hverfið. Okkur finnst líka mikilvægt að eiga gott samtal við ykkur um það sem betur má fara og hvernig borgin getur stutt betur við starfið og viljum gjarnan eiga það samtal eftir kosningar. Afstaða okkar er sú að Reykjavík þarf að ná betri tökum á rekstrinum svo hægt sé að standa við það sem hefur verið lofað. Það gengur ekki til lengdar að gera áætlanir eða samninga sem síðan reynist erfitt að fylgja eftir. Við viljum breyta því og setja meiri festu í fjármálin. Við teljum að það þurfi að færa meiri fjármuni út í hverfin. Þar eru íþróttamannvirki og íþróttastarf barna mjög ofarlega hjá okkur. Við viljum sjá minna fara í yfirbyggingu og meira í það sem skiptir fólk máli í daglegu lífi, s.s. minna ráðhús og meiri hverfi.
Sósíalistaflokkur Íslands
Sósíalistaflokkurinn hefur ekki sett sér sérstaka stefnu né aðgerðaplan í aðstöðu Fjölnis sérstaklega. Við myndum gjarnan vilja vita meira um ykkar kringumstæður. Við höfum einblínt á að tryggja jafnt aðgengi barna af mismunandi bakgrunni, hvort sem er efnahagslegum eða þjóðernis, að íþróttum og tómstund enda þátttaka í frístundastarfi af þeirri gerð gríðarlega mikilvæg fyrir andlega, líkamlega og samfélagslega heilsu. Að því sögðu þá þarf svo sannarlega að huga að innviðum hverfanna með aukinni þéttingu og áformum um heil ný hverfi eins og þið nefnið réttilega á Keldum og í Gufunesi. Við Sósíalistar teljum lykilinn að því að byggja þá innviði sem þörf er á að borgin geri það beint og sjálf, að við förum betur með skattfé borgarbúa með því að hætta útvistun og þannig búum við til aukið svigrúm fyrir ýmis konar stuðning við félags- og íþróttastarf. Við erum jafnframt mjög meðvituð um oft þröngan stakk sveitarfélaga og þess vegna viljum við þrýsta á Alþingi að leggja útsvar á fjármagnstekjur, en slík breyting myndi skila mörgum milljörðum til borgarinnar á hverju ári og búa til miklu traustari grundvöll til framtíðar hvað varðar stuðning og fjármögnun ýmissa verkefna. Þá er einnig mikilvægt að það komi fram að Sósíalistar leggja mikið upp úr því að fá álit og þátttöku íbúa á verkefnin sem varða þau beint, en þá ekki síður íþróttafélaga eins og í þessu tilviki. Móta þarf stefnu og áform með ykkar aðkomu, því þið vitið best hver staðan er í ykkar hverfi og starfi.
Miðflokkurinn
Hefur framboð ykkar kynnt sér aðstöðumál knattspyrnudeildar Fjölnis?
Já Miðflokkurinn hefur kynnt sér aðstöðumál Fjölnis og annara íþróttafélaga í Reykjavík. Það er augljóst að Reykjavíkurborg hefur sýnt íþróttafélögunum í Reykjavík óvild og beitt valdahroka í samskiptum við þau. Það er algjörlega óviðunandi. Það þarf að tryggja samtal borgarinnar, skóla og frístundaheimila og tengja þau við íþróttafélögin, en það samtal er ekkert í dag. Í tengslum við Fjölni þá er núverandi ástand á aðstöðu félagsins, sérstaklega í knattspyrnunni, ekki gott. Það þarf að endurskipuleggja framtíðar félags- og æfingaaðstöðu fótboltans hjá Fjölni og tryggja að Fjölnir byggi upp sína starfsemi til framtíðar í sátt við félagið og Reykjavíkurborg. Við í Miðflokknum erum tilbúin í það samtal.
Ef svo er, hvernig hyggist þið bæta aðstöðuna?
Endurskipulag á framtíðar félagssvæði félagsins í samstafi við Fjölni. Það þarf að tryggja að Fjölnir njóti sambærilegrar aðstöðu og önnur félög í borginni.
Hvaða tímarammi fylgir þeim úrbótum sem þið sjáið fyrir ykkur?
Það verður farið strax í þetta samtal eftir kosningar, ef Miðflokkurinn kemst í meirihluta. Markmiðið er að ná utan um þær innviðaskuldir sem Reykjavíkurborg hefur vanefnt. Núverandi innviðaskuld við íþróttafélögin (í samningum sem nú þegar hefur samið við íþróttafélögin um) er sennilega yfir 20 milljarðar, fyrir utan viðhaldsskuld eldri mannvirkja og loforð um þjóðarleikvanga.
Munið þið setja úrbætur á aðstöðu knattspyrnudeildar Fjölnis í forgang á næsta kjörtímabili?
Já. Miðflokkurinn hefur sett það í forgang að standa við gerða samninga við félögin og taka upp samtal við íþróttafélögin um framtíðar uppbyggingu á félagssvæðum þeirra.
Píratar
Hefur framboð ykkar kynnt sér aðstöðumál knattspyrnudeildar Fjölnis?
Píratar hafa kynnt sér aðstöðumál knattspyrnudeildar Fjölnis.
Ef svo er, hvernig hyggist þið bæta aðstöðuna?
Píratar hafa á síðasta kjörtímabili lagt áherslu á endurbætur á íþróttamannvirkjum í Reykjavík, þar á meðal hjá Fjölni. Við teljum mikilvægt að ungmenni hafi fleiri og betri tækifæri til að verja frítíma sínum á öruggum stöðum og þar á meðal við íþróttaiðkun.
Við leggjum áherslu á að úrbætur verði unnar í nánu samráði við iðkendur, félagið sjálft og íbúa hverfisins. Hverfislyftan er ný útfærsla á hverfislýðræði þar sem leiðin milli íbúa og Reykjavíkurborgar styttist. Píratar munu horfa til þeirra áherslna sem hafa verið settar fram í samstarfi milli borgarinnar og Fjölnis hingað til, meðal annars með yfirlýsingu borgarstjórnar í nóvember 2020 og halda áfram samtali um næstu skref.
Hvaða tímarammi fylgir þeim úrbótum sem þið sjáið fyrir ykkur?
Píratar myndu vilja hefja vinnuna snemma á kjörtímabilinu. Nánari tímasetning og forgangsröðun myndi ráðast í samráði við hverfið, íbúa og viðkomandi félög.
Munið þið setja úrbætur á aðstöðu knattspyrnudeildar Fjölnis í forgang á næsta kjörtímabili?
Fyrir liggur fyrir að knattspyrnuaðstaða Fjlönis var sett í forgang með tillögu borgarstjóra í nóvember 2020, þar sem meðal annars var talið mikilvægt að rýna aðstöðu við Dalshús og Egilshöll. Píratar vilja afla frekari upplýsinga um stöðu mála og vinna áfram að því að úrbætur verði settar í forgang í góðu samráði við félagið og hverfið, með það að leiðarljósi að styrkja
íþróttastarf og aðstöðu.
Aðrar fréttir af deildinni
Sóley Arna Arnarsdóttir semur við Fjölni
21/05/2026
Ainhoa Plaza Porcel semur við Fjölni
16/05/2026






