Þór Guðmundsson ráðinn aðalþjálfari meistaraflokks kvenna í handknattleik

Handknattleiksþjálfarinn Þór Guðmundsson hefur samið við Fjölni um að taka við starfi aðalþjálfara meistaraflokks kvenna næstu tvö árin. Samhliða því mun Þór einnig stýra 3. flokki kvenna hjá félaginu.
Þór kemur til Fjölnis með víðtæka reynslu úr þjálfun kvennahandbolta. Hann hefur áður þjálfað meistaraflokk og 3. flokk kvenna hjá Víkingi, auk þess að hafa verið aðstoðarþjálfari meistaraflokks kvenna hjá Aftureldingu þar sem hann þjálfaði einnig 3. flokk félagsins. Þjálfaraferill hans hófst hjá Fram þar sem hann starfaði ýmsa yngri flokka.
Eftir tveggja ára hlé frá þjálfun vegna stækkandi fjölskyldu er Þór nú tilbúinn að snúa aftur á hliðarlínuna. „Fjölnir er spennandi félag sem hefur staðið sig vel í uppbyggingu undanfarin ár. Eftir að hafa tekið tvö ár í pásu frá þjálfun vegna stækkandi fjölskyldu var það ekki erfið ákvörðun að segja já við þessu verkefni,“ segir Þór. „Það er mikill heiður að fá að vinna með ungum, efnilegum og metnaðarfullum hópi og ég hlakka til að gera mitt besta til að stuðla að áframhaldandi árangri og uppbyggingu.“
Meistaraflokksráð kvenna hjá Fjölni segist afar ánægt með ráðninguna. „Þekking og reynsla Þórs mun styrkja starf liðsins og tryggja áframhaldandi uppbyggingu. Við hlökkum til samstarfsins og þeirra jákvæðu áhrifa sem hann mun hafa á liðið,“ segir í yfirlýsingu ráðsins.
Að lokum vill meistaraflokksráð kvenna þakka Gunnari Val fyrir gríðarlega gott og óeigingjarnt starf fyrir meistaraflokkinn í gegnum árin og óskar honum velfarnaðar í öðrum spennandi verkefnum fyrir deildina.



