Fréttabréf Listskautadeildar
Sonja Henie Trophy
Sonja Heine Trophy í Osló var haldið í þriðja sinn þann 5.-8. mars og átti Fjölnir 4 keppendur. Ermenga Sunna og Elsa Kristín kepptu í Basic Novice. Ermenga náði þeim glæsilega árangri að lenda í 2.sæti með 37,68 stig og Elsa endaði í 32.sæti með 20,27 stig. Arna Dís keppti í Advanced Novice og fékk 26,8 stig fyrir sitt stutta prógram og var hún í 17. sæti að loknum fyrsta degi. Á seinni keppnisdeginum var frjálsa prógrammið á dagskrá og fékk Arna 54,26 stig og 10. sætið fyrir það. Það skilaði henni upp um sex sæti og endaði hún þar með í 11. sæti með 81,06 heildarstig. Með þessum heildarstigum náði Arna persónulegu stigameti. Elín Katla var að keppa í fyrsta sinn í Junior flokki. Í stutta prógramminu fékk hún 38,37 stig sem skilaði henni 16. sætið. Fyrir sitt frjálsa prógramm fékk hún 77,34 stig og 7. sæti. Elín fékk þannig heildarstig upp á 115,71 stig og vann sig þar með upp um fimm sæti og endaði í 11. sæti. Með þessu náði hún viðmiðum í landsliðið í Junior flokki. Til hamingju með árangurinn stelpur, vel gert!
Vormót ÍSS og Bikarmeistararatitilinn
Helgina 27.-29. mars fer fram Vormót ÍSS á Akureyri. Fara 35 keppendur frá Fjölni þangað í hópferð. Margir að keppa í fyrsta sinn. Svona ferðir eru mikilvægar fyrir liðsandann og eitthvað sem skauturunum hlakkar til allt árið.
Í lok Vormóts eru Bikarmeistarar ársins tilkynntir en Fjölnir hefur hreppt þann titil undanfarin þrjú ár og verður spennandi að sjá hvort okkur takist að halda bikarnum. Bikarmótaröð er röð ÍSS móta þar sem félög með keppendur í ÍSS-línu í listskautum safna stigum. Félag er hlýtur flest stig verður bikarmeistari mótaraðar. Stig eru gefin til þess skautara er efst kemur frá hverju félagi fyrir sig. Einum frá hverju félagi. Séu ekki keppendur frá öllum a.m.k. þremur félögum í neinum keppnisflokki á einstöku móti innan Bikarmótaraðar skulu stig reiknuð í þeim keppnisflokkum þar sem einungis vantar eitt félag. Stig sem gefin eru: Adv. Novice, Junior, Senior 15 stig 13 stig 11 stig Basic Novice, Int. Novice, Int. Women/Men 11 stig 9 stig 7 stig 15 stig, 13 stig, 11 stig.
Aðalfundur
Þann 26. mars verður haldinn aðalfundur listskautadeildar. Á þeim fundi verður farið yfir síðasta ár og ný stjórn kosin. Vonum að sem flestir mæti og séu til í að koma í stjórnina og leggja sitt af mörkum. Það er mikilvægt að það séu fulltrúar frá öllum stigum deildarinnar allt frá skautaskóla að afreksskauturum.
Almennar upplýsingar
Með vorinu fer að koma mikið af rauðum dögum og minnum við því á að á rauðum dögum er heilt yfir frí á æfingum nema annað sé tekið fram. Páskafrí er 2.-6.apríl. Grunnpróf eru á dagskrá í apríl og verða upplýsingar sendar til þeirra sem verður boðið að taka þau. Hægt er að lesa um grunnpróf hér:
Á skautaþinginu í maí er svo kosin ný stjórn hjá Skautasambandinu en þar er mjög mikilvægt að Fjölnir eigi fulltrúa. Við stefnum á sumarbúðir 8-26. júní svo endilega takið tímasetningar frá.
Framundan á vorönn:
– Hraðasti skautarinn tímatökur
– Páskafrí 2.-6. apríl
– Grunnpróf apríl (20-22. apríl?)
– Skautaþing 9.maí
– Vorsýning
– Sumarbúðir 8-26.júní










