Viðbrögð Fjölnis við umræðu um mótsgjafir
Um helgina hélt Fjölnir knattspyrnumót fyrir yngstu iðkendurna okkar sem var vel sótt. Slík mót eru byggð upp á mikilli og óeigingjarnri sjálfboðavinnu foreldra og annarra sem leggja sitt af mörkum til að skapa skemmtilegan dag fyrir krakkana. Við erum afar þakklát fyrir allt það fólk sem leggur hönd á plóg til að gera svona viðburði mögulega.
Markmið okkar á þessum mótum er alltaf að veita iðkendunum ánægjulega upplifun þar sem gleði, þátttaka og hreyfing eru í forgrunni.
Okkur hefur borist sú umræða að óánægja hafi verið með mótsgjafir mótsins. Við hlustum á slíka endurgjöf og tökum hana alvarlega. Við ætlum að fara yfir þetta og læra af því sem betur má fara svo við getum gert enn betur næst.
Við viljum jafnframt vekja athygli á því að val á mótsgjöfum er á okkar ábyrgð. Þær eru þó oft gerðar mögulegar með stuðningi dyggra styrktaraðila sem styðja gott íþróttastarf í hverfinu. Í þessu tilfelli hefði valið mátt vera betra og við tökum ábyrgð á því.
Við þökkum fyrir alla endurgjöf og hlökkum til að taka á móti krökkunum aftur á næstu mótum.
