Fréttabréf Tennisdeildar
Fréttir af háskólastelpunum okkar
Háskólastelpurnar okkar Bryndís og Eygló hafa hafið keppnistímabilið af fullum krafti. Bryndís er á háskólastyrk við University of the Cumberlands í Williamsburg í Kentucky þar sem hún er á sínu öðru ári, en Eygló er á sínu fyrsta ári á háskólastyrk við University of Southern New Hampshire í Manchester í New Hampshire.
Bryndís hefur þegar látið að sér kveða og var valin NAIA Mid-South Conference Player of the Week í síðustu viku og bætir þar með fyrsta MSC Tennis Player of the Week titlinum á ferilskrána sína.
Í byrjun árs mætti hún einnig Bellarmine University sem er D1 skóli. Andstæðingurinn hennar í einliðaleiknum er í kringum sæti 5700 á heimslistanum, en Bryndís vann leikinn sannfærandi eftir að hafa tapað fyrsta settinu, 3–6, 6–3, 6–3. Þetta er risastór sigur fyrir Bryndísi og tennisdeild Fjölnis og stærsti sigur hennar hingað til.
Árangur innanlands
Daniel Pozo hefur einnig verið að standa sig afar vel hér heima á Íslandi. Hann er ótrúlega metnaðarfullur leikmaður sem hefur verið að stíga mikið upp að undanförnu og sýnt stöðugar framfarir í sínum leik.
Fyrsta tennismót ársins á vegum Tennissambands Íslands var Vormót HMR-TSÍ, þar sem Daniel komst alla leið í úrslit. Þar spilaði hann hörkuleik gegn Rafni Kumar Bonifacius, sem er númer eitt á Íslandi, og sýndi þar vel hversu langt hann er kominn í sinni þróun sem leikmaður.



