Aðalfundur íshokkýdeildar Fjölnis
Aðalfundur íshokkýdeildar Fjölnis verður haldinn 25. mars n.k. kl. 18.00 í aðstöðu félagsins í Egilshöll.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf
Í 17 grein laga félagsins segir:
Stjórn hverrar deildar skal skipuð þremur til sjö einstaklingum, formanni sem kosinn er á aðalfundi viðkomandi deildar og tveimur til sex meðstjórnendum og allt að tveimur til vara, einnig kjörnum á aðalfundinum.
Tillögur um stjórnarmenn skulu berast til skrifstofu minnst 5 dögum fyrir boðaðan aðalfund. Ef ekki berast næg framboð fyrir tilskilin tíma er heimilt að bjóða sig fram á aðalfundinum og skulu þeir sem tilkynntu framboð sín innan framboðsfrests teljast kjörnir en kosið á milli annarra. Hafi framboð verið tilkynnt innan framboðsfrests en viðkomandi frambjóðandi ekki náð kjöri sem aðalmaður er viðkomandi heimilt að gefa kost á sér á fundinum til setu í varastjórn.
Framboð skulu send til framkvæmdastjóra félagsins, Guðmundi G. Sigurbergssyni á netfangið gudmundur@fjolnir.is eigi síðar en 20 mars n.k.
Aðalfundur Skautafélags Bjarnarins
Samhliða verður aðalfundur Skautafélagsins Bjarnarins haldinn þann 23. mars n.k. kl.20:00 í aðstöðu félagsins í Egilshöll.
Dagskrá:
Kjör nýrrar stjórnar.

