2. flokkur karla Reykjavíkurmeistari í knattspyrnu

Í gær urðu 2. flokkur Fjölnis í knattspyrnu Reykjavíkurmótsmeistarar 2026. Liðið tryggði sér titilinn með sannfærandi 5–0 sigri á Fylki í úrslitaleiknum en fyrir leikinn hafði það farið taplaust í gegnum sinn riðil þar sem það vann þrjá leiki og gerði eitt jafntefli.
Mörk Fjölnis í úrslitaleiknum skoruðu Aron Sölvi (2), Elmar Daði, Mikael Tal og Tómas Ari.
Frábær frammistaða og vel að verki staðið!
