
Fjörfiskar í Fjölni – opnir hreyfitímar fyrir ung börn og fjölskyldur
Fjörfiskar í Fjölni er sérstakt samfélagsverkefni innan Ungmennafélagsins Fjölnis sem býður upp á opna og gjaldfrjálsa hreyfitíma í íþróttasal fyrir ung börn og fjölskyldur þeirra. Markmið verkefnisins er að þjóna nærsamfélaginu og ná sérstaklega til þeirra sem ekki eru í skipulögðu íþróttastarfi eða hafa annað móðurmál en íslensku.
Á hverjum tíma eru settar upp fjölbreyttar leik- og hreyfistöðvar þar sem börnin fá að klifra, hoppa, hlaupa og leika sér eftir eigin áhuga og getu. Foreldrar eru hvattir til að taka virkan þátt, hreyfa sig með börnunum og eiga saman gæðastund í öruggu og jákvæðu umhverfi.
Uppsetning verkefnisins er afar sveigjanleg. Engin skráning er nauðsynleg og engin æfingagjöld eru innheimt. Fjölskyldur mæta þegar þeim hentar og fara þegar það passar innan opnunartíma.
Verkefnið hóf göngu sína síðasta haust í íþróttasal Hamraskóla og hefur fengið afar góðar viðtökur. Með styrkjum frá Hvatasjóði íþróttahreyfingarinnar og nýverið Lýðheilsusjóði, ásamt góðu aðgengi að íþróttasalnum, hefur verið mögulegt að bjóða verkefnið gjaldfrjálst.
Að verkefninu standa íþróttafræðingarnir Sveinn Þorgeirsson og Anna Margrét Guðmundsdóttir. Auk þess að halda utan um tímana og sjá um uppsetningu er þátttakendum velkomið að leita til þeirra varðandi hreyfingu, leik og íþróttaþátttöku barna.
Fyrirmynd verkefnisins er sótt í Fjölskyldutíma í Varmá í Mosfellsbæ sem hafa notið mikillar velgengni í yfir 10 ár.
Nánari upplýsingar má finna á Facebook-síðu Fjörfiska í Fjölni:
https://www.facebook.com/fjorfiskarifjolni

