Helgi Snær Agnarsson semur við Fjölni

Knattspyrnudeild Fjölnis hefur gengið frá samningi við Helga Snæ Agnarsson sem gengur til liðs við félagið fyrir komandi keppnistímabil.

Helgi Snær, sem fæddur er árið 1999, er fjölhæfur leikmaður sem getur leyst margar stöður á vellinum. Hann kemur til félagsins frá KFG en á jafnframt að baki fyrri sögu hjá Fjölni. Helgi Snær hefur leikið alls 45 leiki í 1. deild með Fjölni, Þrótti Vogum og Magna. Þá á hann einnig um 45 leiki í 2. deild með ÍR og KFG.

Til gamans má geta þess að Helgi Snær var bikarmeistari með 2. flokki Fjölnis árið 2018, Íslandsmeistari í innanhússknattspyrnu árið 2019 og 4. deildarmeistari með Vængjum Júpíter árið 2023.

Aðspurður um félagsskiptin er tilhlökkun fyrir komandi sumri hjá Helga Snæ: „Ég er spenntur fyrir sumrinu í Grafarvoginu, það er frábært að vera kominn aftur í góða aðstöðu, samheldinn leikmannahóp og félag með skýr markmið. Ég mun leggja allt mitt að mörkum til að koma félaginu aftur í næstefstu deild og verkefninu er ekki lokið þar, því félagið á mikið inni. Grafarvogurinn verður gulur og glaður í sumar“.

Fjölnir býður Helga Snæ velkominn aftur til félagsins og hlakkar til samstarfsins á komandi tímabili. Áfram Fjölnir!

UNGMENNAFÉLAGIÐ FJÖLNIR

Egilshöll | Fossaleyni 1 | 112 Reykjavík | Kt. 631288-7589

Opnunartími skrifstofu

Mánudaga – fimmtudaga
09:00-12:00 og 13:00-16:00

Föstudaga
09:00-12:00

Símatími skrifstofu

Mánudaga – fimmtudaga
10:00-11:30

Sími: 578-2700

Hafðu samband

skrifstofa@fjolnir.is

Translate »