Fréttabréf Listskautadeildar


Norðurlandamótið 2026

Norðurlandamótið á listskautum fór fram í Hvidovre í Danmörku dagana 29/1-1/2 og átti Fjölnir tvo fulltrúa sem tóku þátt fyrir Íslands hönd. Voru það þær Arna Dís Gísladóttir og Elín Katla Sveinbjörnsdóttir. Einnig fór Benjamin Naggiar yfirþjálfari með sem þjálfari í ferðina. Fyrsti keppnisdagur var fimmtudagurinn 29.janúar og var keppt í stutta prógramminu. Arna Dís var fyrr á ísinn af okkar stúlkum. Eftir sitt prógram fékk hún 27,18 stig og endaði fyrsta daginn í 20.sæti. Elín Katla fór seinust af íslensku keppendum inn á svellið til að taka sitt stutta prógramm. Ekki gekk allt upp en hún endaði í 16.sæti á fyrsta deginum með 29,66 stig fyrir sína frammistöðu. Á seinni keppnisdeginum sem var á föstudeginum fór Arna Dís inn á svell þriðja af Íslendingunum. Fyrir frjálsa prógrammið fékk hún 44,37 stig og endaði í 20.sæti. Með þessum árangri náði hún 20.sætinu og 71,55 stig í heildarstigum. Seinust Íslendinganna inn á svellið til að taka frjálsa prógrammið var Elín Katla. Fyrir frjálsa prógrammið fékk Elín 66,87 stig og 8.sæti. Þetta skilaði Elínu samtals 96,53 stig og 12.sætinu.

Með sínum heildarstigum náði Elín Katla þeim glæsilega árangri að fá hæstu heildarstig sem íslenskur skautari hefur fengið í Advanced Novice flokki á Norðurlandamóti. Með því slær hún eigið met frá síðasta ári. Í frjálsa prógramminu fékk hún 39,05 tæknistig en það eru hæstu tæknistig allra keppenda í frjálsa prógramminu í Advanced Novice þetta árið.


Fögnuður

Laugardaginn 7.febrúar skelltu hópur 1-5 sér í keilu + pizzuveisla. Það var virkilega vel heppnað og skemmtu allir sér vel.


Skautaloppa

Miðvikudaginn 11.febrúar settum við upp skautaloppu í afíssalnum í fyrsta sinn. Buðust öllum iðkendum deildarinnar að setja upp bás og selja, kaupa eða skiptast á notuðum skautavörum. Vonir standa til að geta endurtekið þennan viðburð seinna með betri þátttöku og stuðla að endurnýtingu.


Valentínusarleikar

Laugardaginn 14.febrúar hélt deildin innanfélags Valentínusarleika fyrir félagalínu. Margir voru að stíga sín fyrstu skref í átt að keppni en reynsluboltar stigu einnig á svellið. Þátttakendur fengu stjörnublöð með árangur dagsins og vonum við að allir hafi verið ánægðir með leikana. Þátttakendur voru leystir út með gjafir frá Pollyönnu og Next Level Gaming og þökkum við þeim stuðninginn og takk sjálfboðaliðar fyrir ykkar framtak!


Kristalsmót

Ekki hefur tekist að manna dómarapanel fyrir Kristalsmót og óvíst hvort það gangi upp en við erum enn að reyna. Ef það gengur verður það þó ekki fyrr en eftir Vormót.

Sonja Henie Trophy

Sonja Henie Trophy verður haldið í Osló í mars og á Fjölnir 4 keppendur sem fara þangað. Ermenga og Elsa keppa í Basic Novice. Arna og Elín fara með landsliðinu og er Elín að keppa í fyrsta sinn í Junior. Það verður spennandi að fylgjast með því.


Sumarbúðir

Erum byrjuð að skipuleggja sumarbúðir 8-26/6 -> þó að það sé ekki staðfest þá endilega takið frá tímann!


Klippikort fyrir skautahlaup

Nú er hægt að kaupa 5 og 10 tíma kort í skautahlaupi á Abler. Hvetjum alla áhugasama að prófa þessa íþrótt.


Framundan á vorönn:

  • Hraðasti skautarinn tímatökur
  • Sonja Henie Trophy 5-8/3
  • Vormót Akureyri 27-29/3
  • Kristalsmót
  • Páskafrí 2-6/4
  • Grunnpróf apríl (20-22.*)
  • Skautaþing 9.maí
  • Vorsýning verður líklega 30.maí

UNGMENNAFÉLAGIÐ FJÖLNIR

Egilshöll | Fossaleyni 1 | 112 Reykjavík | Kt. 631288-7589

Opnunartími skrifstofu

Mánudaga – fimmtudaga
09:00-12:00 og 13:00-16:00

Föstudaga
09:00-12:00

Símatími skrifstofu

Mánudaga – fimmtudaga
10:00-11:30

Sími: 578-2700

Hafðu samband

skrifstofa@fjolnir.is

Translate »