Marta Björgvinsdóttir semur við Fjölni

Knattspyrnudeild Fjölnis hefur framlengt samning sinn við miðjumanninn Mörtu Björgvinsdóttir til næstu tveggja ára. Marta, sem er 22 ára, er uppalin Fjölniskona og hefur leikið 108 leiki fyrir félagið og skorað í þeim 11 mörk.
Marta sneri aftur til Fjölnis á síðasta ári eftir stutta dvöl hjá Álftanesi og varð fljótt mikilvægur hlekkur í liðinu. Á síðasta tímabili lék hún leik númer 100 fyrir félagið í útileik gegn Sindra, þar sem hún kryddaði tímamótin með marki.
Vesko þjálfari liðsins hafði þetta um framlenginguna að segja: „Það eru afar góðar fréttir fyrir okkur að Marta hafi skrifað undir nýjan samning. Hún er frábær leikmaður sem þekkir vel þau gildi sem félagið stendur fyrir og er tilbúin að leggja sig fram fyrir þau. Marta er sífellt að bæta sig og gefur okkur meiri stöðugleika á miðsvæðinu. Þrátt fyrir ungan aldur hefur hún þegar mikla reynslu af meistaraflokksfótbolta og við erum sannfærð um að hún muni spila lykilhlutverk í áframhaldandi uppbyggingu liðsins.“
Aðrar fréttir af deildinni
Patryk Hryniewicki semur við Fjölni
14/02/2026
Birgir Þór semur við Fjölni
11/02/2026
Harpa Sól semur við Fjölni
28/01/2026









