Patryk Hryniewicki semur við Fjölni

Knattspyrnudeild Fjölnis hefur gengið frá samningi við varnarmanninn Patryk Hryniewicki sem gengur til liðs við félagið fyrir komandi keppnistímabil.
Patryk er fæddur árið 2000 og leikur sem hafsent. Hann er uppalinn hjá Leikni í Reykjavík þar sem hann hefur leikið 45 leiki í meistaraflokki og skorað 2 mörk.
Um er að ræða öflugan og hávaxinn varnarmann sem bætir styrk og festu í varnarleik liðsins. Stjórn og þjálfarateymi Fjölnis telja Patryk vera mikilvæga viðbót við leikmannahóp félagsins fyrir verkefnin fram undan. Aðspurður um félagaskiptin er Patryk ánægður með að vera kominn í Fjölni: „Ég er mjög spenntur að koma til Fjölnis. Mér finnst klúbburinn frábær og strákarnir geggjaðir. Ég hlakka til að gefa allt í þetta“.
Fjölnir býður Patryk velkominn til félagsins og hlakkar til samstarfsins á komandi tímabili. Áfram Fjölnir!
Aðrar fréttir af deildinni
Momola semur við Fjölni
02/03/2026
Helena og Ísabella semja við Fjölni
27/02/2026
Helgi Snær Agnarsson semur við Fjölni
17/02/2026
Marta Björgvinsdóttir semur við Fjölni
15/02/2026












