Leynist vinningsmiði á þínu heimili?
Dregið var nýlega í happdrættum Fjölnis og nokkrir vinningar hafa enn ekki verið sóttir. Vinningsmiða má nálgast á aðalskrifstofu Fjölnis í Egilshöll á opnunartíma.
Við hvetjum alla sem keyptu miða til að yfirfara númer sín og ganga úr skugga um hvort vinningur sé á þeirra miða. Mikilvægt er að sækja vinninga innan tilgreinds frests, en að þeim tíma liðnum fyrnast ósóttir vinningar.
Hægt er að fá nánari upplýsingar með að hafa samband við skrifstofu. Hér að neðan má sjá vinningarskrár.


