Birgir Þór semur við Fjölni

Knattspyrnudeild Fjölnis hefur framlengt samning sinn við varnarmanninn Birgi Þór Jóhannsson til næstu þriggja ára.
Birgir Þór, sem er fæddur árið 2007, er hraður og leikinn varnarmaður sem hefur staðið sig afar vel með liðinu á undirbúningstímabilinu í vetur. Frammistaða hans hefur vakið athygli innan félagsins og þykir ljóst að hann er einn af efnilegri leikmönnum liðsins.
Með samningnum tryggir Fjölnir sér áframhaldandi uppbyggingu á ungum og metnaðarfullum leikmanni sem félagið bindur miklar vonir við á komandi árum.
Samningsframlengingin er liður í þeirri stefnu Fjölnis að byggja sterkan kjarna fyrir framtíðina.
Aðrar fréttir af deildinni
Momola semur við Fjölni
02/03/2026
Helena og Ísabella semja við Fjölni
27/02/2026
Helgi Snær Agnarsson semur við Fjölni
17/02/2026
Marta Björgvinsdóttir semur við Fjölni
15/02/2026








