Skákmenn Fjölnis hljóta styrk úr Afrekssjóði Skáksambands Íslands 2026

Tveir skákmenn Skákdeildar Fjölnis, stórmeistarinn Héðinn Steingrímsson og alþjóðlegi meistarinn Dagur Ragnarsson, eru í hópi 13 íslenskra skákmanna sem hlutu styrk úr Afrekssjóði Skáksambands Íslands fyrir árið 2026.

Við úthlutun styrkjanna var meðal annars horft til árangurs og virkni keppenda á árinu 2025, sem og áætlana þeirra um áframhaldandi þátttöku og afrek í skák á árinu 2026. Héðinn hlýtur styrk til 9 mánaða en Dagur til 3 mánaða.

Héðinn Steingrímsson hefur teflt fyrir Skákdeild Fjölnis frá árinu 2007 og oftar en ekki á fyrsta borði. Dagur Ragnarsson er uppalinn Fjölnismaður og var kjörinn Skákkarl Fjölnis tvö ár í röð, 2024 og 2025. Árið 2024 var hann jafnframt valinn Íþróttamaður Fjölnis.

Þeir Héðinn og Dagur hafa báðir teflt með A-sveit Fjölnis, sem varð Íslandsmeistari skákfélaga 2024 og 2026. Dagur hefur hafið árið 2026 af krafti en hann tryggði sér nýverið öruggan sigur á Skákþingi Reykjavíkur og hlaut með því titilinn Skákmeistari Reykjavíkur 2026.

UNGMENNAFÉLAGIÐ FJÖLNIR

Egilshöll | Fossaleyni 1 | 112 Reykjavík | Kt. 631288-7589

Opnunartími skrifstofu

Mánudaga – fimmtudaga
09:00-12:00 og 13:00-16:00

Föstudaga
09:00-12:00

Símatími skrifstofu

Mánudaga – fimmtudaga
10:00-11:30

Sími: 578-2700

Hafðu samband

skrifstofa@fjolnir.is

Translate »