Arrate Juste Vidaurrazaga semur við Fjölni

Arrate Juste Vidaurrazaga hefur skrifað undir samning við Fjölni fyrir keppnistímabilið 2026. Hin 27 ára gamla Arrate er spænska markvörður og kemur til félagsins frá Extremadura CD. Arrate er uppalin í unglingastarfi Athletic Bilbao, sem er þekkt fyrir að ala af sér markverði í hæsta gæðaflokki. Hún er reynslumikill markvörður og mun jafnframt leggja sitt af mörkum til að efla og þróa unga markverði félagsins.
Vesko, þjálfari meistaraflokks kvenna er mjög ánægður með nýjasta leikmann liðsins. „Við erum afar ánægð með að fá Arrate til liðs við okkur. Hún er reynslumikill markvörður sem eykur breiddina í þessari stöðu. Við höfum fylgst með henni undanfarið og teljum hana passa mjög vel inn í okkar leikstíl. Hún er róleg undir pressu, með góða sendingagetu bæði stuttar og langar sendingar, og les leikinn afar vel. Við erum með metnaðarfull markmið og teljum Arrate vera mjög mikilvægan hluta af púslinu fyrir næsta tímabil.“
Velkominn Arrate, áfram Fjölnir!
Aðrar fréttir af deildinni
Aðalfundur knattspyrnudeildar Fjölnis
09/03/2026
Momola semur við Fjölni
02/03/2026
Helena og Ísabella semja við Fjölni
27/02/2026









