Aðalfundur Fjölnis fór fram miðvikudaginn 15. mars kl. 17:00 í félagsrými Fjölnis í Egilshöll.

Fyrir fundinn var haldinn fundur með heiðursfélögum, https://fjolnir.is/felagid-okkar/heidursfelagi/ og heiðursforsetum, https://fjolnir.is/felagid-okkar/heidursforsetar/. Mæting var góð og sköpuðust skemmtilegar umræður.

Fundurinn gekk vel og viljum við þakka fráfarandi stjórnarmeðlimum fyrir gott og þarft starf. Við bjóðum nýja stjórnarmeðlimi velkomna en þeir eru, Gunnar Jónatansson, Trausti Harðarson og Gunnar Ingi Jóhannsson. Nýkjörna aðalstjórn má sjá hér, https://fjolnir.is/felagid-okkar/adalstjorn/.

Við viljum einnig þakka gestum okkar, Guðmundi Sigurbergssyni frá UMFÍ og Lilju Sigurðardóttur frá ÍBR.

Gerð var breyting á 15. grein laga félagsins:

“Heiðursveitingar UMFF eru: Silfurmerki, Gullmerki, heiðursfélagi UMFF og heiðursforseti UMFF. Heiðursráð Fjölnis skipa heiðursforsetar félagsins og heiðursfélagar Fjölnis. Heiðursráð er aðalstjórn félagsins til ráðuneytis og kemur saman að óska aðalstjórnar. Aðalstjórn setur nánari reglur um starfsemi heiðursráðs. Stjórn félagsins tekur ákvarðanir um heiðursveitingar og setur nánari reglur um þær.  Tilkynna skal um heiðursveitingar á aðalfundi.”

Eftirfarandi breytingatillaga var lögð fram og samþykkt á fundinum:

“Heiðursveitingar Fjölnis eru: silfurmerki, gullmerki, heiðursfélagi Fjölnis og heiðursforseti Fjölnis. Heiðursráð Fjölnis skipa heiðursforsetar félagsins og heiðursfélagar Fjölnis. Heiðursráð er aðalstjórn félagsins til ráðuneytis og kemur saman að óska aðalstjórnar. Aðalstjórn setur nánari reglur um starfsemi heiðursráðs. Stjórn félagsins tekur ákvarðanir um heiðursveitingar og setur nánari reglur um þær.  Tilkynna skal um heiðursveitingar á aðalfundi og/eða á sérstakri uppskeruhátíð félagsins ár hvert.”

——————————

Aðalfundur Fjölnis fer fram miðvikudaginn 15. mars kl. 17:00. Fundurinn verður í Miðjunni, félagsrými Fjölnis í Egilshöll.

Framboð stjórnarmanna þarf að berast til gummi@fjolnir.is eigi síðar en 10. mars.

Tillögur til breytinga á lögum félagsins, undirritaðar af flutningsmönnum, skulu sendar aðalstjórn félagsins eigi síðar en 10. mars.

Dagskrá:
a) Skýrsla stjórnar
b) Reikningar félagsins
c) Lagabreytingar
d) Kjör formanns
e) Kjör stjórnarmanna
f) Kjör skoðunarmanna reikninga
g) Önnur mál

8. grein
Stjórn félagsins er skipuð sjö mönnum og allt að tveimur til vara. Kosning til stjórnar skal fara þannig fram:
1. a) kosning formanns til eins árs,
2. b) kosning sex meðstjórnenda til tveggja ára, þannig að þrír eru kosnir á hverju ári,
3. c) kosning tveggja manna í varastjórn til eins árs.

Allir félagsmenn félagsins sem eru fjárráða geta boðið sig fram til formanns. Formaður félagsins getur ekki samtímis verið formaður deildar. Tilkynningar um framboð til formanns og meðstjórnenda félagsins skulu berast framkvæmdarstjóra félagsins minnst 5 dögum fyrir boðaðan aðalfund.

Formaður er kosinn beinni kosningu á aðalfundi, en að öðru leyti skiptir stjórnin sjálf með sér verkum. Stjórn fer með umboð og vald aðalfundar á milli aðalfunda án heimildar til lagabreytinga.

Á aðalfundi skulu einnig kosnir tveir skoðunarmenn reikninga en í þeirra stað má kjósa einn löggiltan endurskoðanda.

Lög Fjölnis má finna hér