Æfingatöflur Sunddeildar Fjölnis 2025
Hér fyrir neðan er hægt að sjá æfingatöflur allra flokka í sundi haustið 2025. Birt með fyrirvara um breytingar.
Til að fá nánari upplýsingar má hafa samband við skrifstofu Fjölnis í síma 578-2700 eða í gegnum skrifstofa@fjolnir.is
Fjölnir og Ármann í samstarfi um sundæfingar í Grafarvogslaug
Íþróttafélagið Fjölnir og Ármann hafa tekið höndum saman og bjóða áfram upp á sundæfingar og sundnámskeið fyrir börn í Grafarvogslaug. Með þessu samstarfi er tryggt að boðið verði upp á fjölbreytt og öflugt sundstarf í Grafarvogi, þar sem börnum í hverfinu gefst kostur á að stunda sund í heimahverfi sínu.
Sunddeild Ármanns sér áfram um skipulag og faglega þjálfun námskeiðanna í samstarfi við Fjölni. Byggt er á reynslu og þekkingu þjálfara sem hafa áralanga reynslu af sundkennslu og þjálfun barna.
Fjölnir leggur mikla áherslu á að íbúar Grafarvogs hafi aðgang að fjölbreyttu íþróttastarfi í nærumhverfinu, og sundið er mikilvæg viðbót við þá þjónustu sem félagið býður upp á. Með samstarfi Fjölnis og Ármanns er tryggt að sundstarf í Grafarvogi haldi áfram að þróast og dafna.
Félögin vonast til að enn fleiri börn í hverfinu sjái sér fært að taka þátt í sundnámskeiðum og að sundið verði áfram sterkur hluti af íþróttalífi svæðisins.
Allar nánari upplýsingar um námskeið og skráningu má finna hér: https://www.abler.io/shop/armann/sund