Skráning hafin á sumarnámskeið Fjölnis 2026 ☀️

Skráning er nú hafin á sumarnámskeið Fjölnis sumarið 2026. Boðið verður upp á fjölbreytt og skemmtileg námskeið fyrir börn í Egilshöll og Dalhúsum í sumar.
Dagskrá sumarsins
Vika 1 – 15.–19. júní – Sumarnámskeið í Egilshöll
Vika 2 – 22.–26. júní – Sumarnámskeið í Egilshöll
Vika 3 – 29. júní – 3. júlí – Leikjanámskeið í Dalhúsum
Vika 4 – 6.–10. júlí – Leikjanámskeið í Dalhúsum
Vika 5 – 10.–14. ágúst – Sumarnámskeið í Egilshöll og Fjölgreinanámskeið
Sumarnámskeið
Fjölbreytt og skemmtileg námskeið fyrir börn fædd 2016–2020 fara fram í júní undir leiðsögn þjálfara og aðstoðarfólks.
✨ Börn geta valið eina eða fleiri íþróttir – fyrir og/eða eftir hádegi
🍽 Í boði er heitur hádegismatur alla daga (eða bara pizza á föstudögum ef það hentar betur)
👶 Hægt er að bæta við gæslu fyrir og/eða eftir námskeið
Leikjanámskeið í Dalhúsum – NÝTT!
Skemmtileg afþreying fyrir börn í Grafarvogi og nágrenni.
🕘 Hálfs dags námskeið frá kl. 08:30–12:00
Fjölgreinanámskeið
Skemmtilegt og hreyfiríkt heilsdagsnámskeið þar sem börnin fá að kynnast fjölbreyttum íþróttagreinum í gegnum leik og gleði. Þjálfarar og aðstoðarfólk Fjölnis sjá um faglega og örugga umgjörð þar sem stuð og hreyfing eru í fyrirrúmi.
⚽ Fótbolti
🤸 Fimleikar
🏃 Frjálsar íþróttir
🤾 Handbolti
🏀 Körfubolti
⛸️ Listskautar
🎮 Rafíþróttir
🏒 Hokkí
