Skautaskóli listskautadeildar


Skautaskólinn er fyrir börn á aldrinum 3-12 ára sem vilja læra fyrstu skrefin á ísnum.

SKRÁNING HÉR

Það er frítt að prófa og hægt er að skrá sig hvenær sem er yfir önnina!

Í skautaskólanum læra iðkendur fyrstu skrefin á ísnum, læra helstu jafnvægisæfingar, skauta áfram og aftur á bak og að stoppa. Allir nýir iðkendur byrja í skautaskólanum.

Æfingar fara fram á miðvikudögum og laugardögum. Hægt er að velja um að æfa báða dagana eða annað hvort miðvikudag eða laugardag.

Allar æfingar fara fram á skautasvellinu í Egilshöll. Svellið er á annarri hæð hússins, gengið upp stiga hægra megin frá aðalinngangi Egilshallar gengt hárgreiðslustofunni.

Allir sem vilja fá lánaða skauta og hjálm.

Til að fá nánari upplýsingar má hafa samband við skrifstofu Fjölnis í síma 578-2700 eða á skrifstofa@fjolnir.is

Skautaskóli 3-12 ára

Miðvikudagar

Svell kl. 16:20-17:00

Laugardagar

Svell kl. 12:20-13:00

Upplýsingar um viðburði flokksins og óvæntar breytingar á áætlun koma fram á samskipta og skipulags forritinu XPS

Benjamin Naggiar

Yfirþjálfari deildar

Sólbrún Erna Víkingsdóttir

Umsjónarmaður skautaskólans

Vigdís Björg Einarsdóttir

Aðstoðarþjálfari

Ásta Lovísa Vilhjálmsdóttir

Aðstoð á ís

Ísabella Jóna Sigurðardóttir

Aðstoð á ís

Íris María Ragnarsdóttir

Aðstoð á ís

Verðskrá fyrir vorönn 2024

Verð fyrir skautaskóla er 71.500 kr. ef æft 2x í viku en 37.400 kr. ef æft er 1x í viku.

Innifalið í æfingagjöldum:

  • 1 eða 2 æfingar á viku
  • Skautanælur (Skautum regnbogann)
  • Lán á skautum og hjálmi

Skráningar fara fram í gegnum https://xpsclubs.is/fjolnir/registration

Æfingagjöld listskautadeildar má finna hér.

Æfingar

Æfingar fara fram á svelli.

Skautaskólinn er fyrir byrjendur og eru helstu áherslur lagðar á að læra undirstöðuatriði íþróttarinnar og ná góðum tökum á jafnvægi og hraða.

Undirstöðuatriði íþróttarinnar eru:

  • Líkamsburður og líkamshalli
  • Notkun á hnjám (að beygja hnén)
  • Notkun á ökklum
  • Rennsli
  • Brúnir, notkun brúna og notkun líkamsþyngdar
  • Taktur og samhæfing
  • Aukning á hraða og takti smám saman
  • Rétt spyrna

Fatnaður

Á æfingum eiga skautarar að vera í hlýjum og teygjanlegum fatnaði, t.d. flísbuxum og flíspeysu. Ekki má mæta í fatnaði með löngum reimum, víðum fatnaði, hettupeysum né með trefil.

Æfingar utan hefðbundinna æfingatíma

Boðið er upp á heilsdags sumarnámskeið í júní og ágúst. Á námskeiðunum eru æfingar á svelli, gólfi, leikir og útivera. Gott er að iðkendur mæti í sumarbúðir en á þessum tíma er unnið að bæta grunnskautun og tækni. Ef iðkandi tekur frí allt sumarið er líklegt að hann hafi misst niður tækni sem getur tekið nokkrar vikur að vinna upp aftur að hausti.

Mót

Iðkendur Skautaskólans taka ekki þátt á mótum.

Foreldrar

Foreldrar eru hvattir til að fylgjast með æfingum á svelli og er þeim velkomið að sitja í stúkunni og fylgjast með æfingum. Hins vegar viljum við biðja foreldra að virða vinnusvæði þjálfara og iðkenda. Því er ekki heimilt að sitja eða standa við svæðið fyrir aftan svellið (við gluggana), vera í klefanum fyrir neðan stúkuna, á ísnum eða í íþróttasal á meðan á þjálfun stendur. Ennfremur er óheimilt að eiga í samskiptum við iðkendur og þjálfara á meðan á æfingu stendur.

  • Axel Örn Sæmundsson
  • Þrymill Þursi Arason
  • Guðfastur Brjánn Pétursson

Nánari upplýsingar um þjálfara flokksins má finna hér