Fullorðnir 18 ára og eldri
Fullorðinshópur hentar bæði þeim sem eru að taka sín fyrstu skref í íþróttinni en einnig fyrir þá sem hafa grunnkunnáttu.
SKRÁNING HÉR
Það er frítt að prófa og hægt er að skrá sig hvenær sem er yfir önnina!
Kennd eru undirstöðuatriði og einfaldar æfingar, snúningar og hopp. Æfingar eru tvisvar í viku en í boði er að kaupa klippikort fyrir þá sem vilja bara æfa einu sinni í viku.
Þjálfarar segja til um hvaða hópur hentar hverjum skautara.
Allar æfingar fara fram á skautasvellinu í Egilshöll. Svellið er á annarri hæð hússins, gengið upp stiga hægra megin frá aðalinngangi Egilshallar gengt hárgreiðslustofunni.
Til að fá nánari upplýsingar má hafa samband við skrifstofu Fjölnis í síma 578-2700 eða á skrifstofa@fjolnir.is
Haust 2023 – Fullorðinshópur
Miðvikudagar
Svell kl. 21:00-21:40
Laugardagar
Svell kl. 11:35-12:20
Upplýsingar um viðburði flokksins og óvæntar breytingar á áætlun koma fram á samskipta og skipulags forritinu Sideline
Aníta Lórenzdóttir
Þjálfari
Helga Karen Pedersen
Þjálfari
Verðskrá fyrir vorönn 2023
Verð fyrir æfingar 2x í viku er 52.000 kr. en 26.000 kr. ef æft er 1x í viku.
Innifalið í æfingagjöldum:
- 1 eða 2 æfingar á viku
- Skautanælur (Skautum regnbogann)
- Lán á skautum og hjálm
Skráningar fara fram í gegnum https://fjolnir.felog.is/
Æfingagjöld listskautadeildar má finna hér.
Æfingar
Markmið að læra undirstöðuatriði íþróttarinnar og ná góðum tökum á jafnvægi og hraða. Eftir því sem skautari nær betri tökum verður lögð áhersla á spor, brúnir, krossa, einföld stökk og snúninga.
Undirstöðuatriði íþróttarinnar eru:
- Líkamsburður og líkamshalli
- Notkun á hnjám (að beygja hnén)
- Notkun á ökklum
- Rennsli
- Brúnir, notkun brúna og notkun líkamsþyngdar
- Taktur og samhæfing
- Aukning á hraða og takti smám saman
- Rétt spyrna
Fyrir lengra komna skautara er markmið að viðhalda skautakunnáttu sinni og tengslum við íþróttina.
Fatnaður
Á æfingum eiga skautarar að vera í hlýjum og teygjanlegum fatnaði, t.d. flísbuxum og flíspeysu og vera í fingravettlingum. Ekki má mæta í víðum fatnaði með löngum reimum, hettupeysum né með trefil. Á afís á að vera í íþróttafötum og strigaskóm.
Æfingar utan hefðbundinna æfingatíma
Ekki er boðið upp á æfingar yfir sumarmánuðina.
Mót
Iðkendur Skautaskólans taka ekki þátt á mótum.
- Axel Örn Sæmundsson
- Þrymill Þursi Arason
- Guðfastur Brjánn Pétursson
Nánari upplýsingar um þjálfara flokksins má finna hér