Fatnaður & skautar
Fatnaður – Á ís
Mæta skal á æfingu með hárið tekið frá andlitinu (snúður, flétta) þannig að það trufli ekki skautarann á æfingunni.
- Hlýr og teygjanlegur fatnaður (flísbuxur og flíspeysa)
- Sleppa skal: löngum treflum, löngum reimum, hettupeysum, gallabuxum, víðum fatnaði, úlpum, kuldagöllum
Fatnaður – Á afís
- Íþróttaföt og strigaskór
- Ekki klæðast gallabuxum og ekki vera með skartgripi
- Kuldaskór og stígvél eru ekki góð fyrir afís, gott að geyma strigaskó í skautatösku
- Gott að vera með vatnsbrúsa og smá hollt nesti til að hafa á milli æfinga
Skautar
- Endilega leitið til þjálfara við val á nýjum skautum
Skerping
- Er nauðsynleg fyrir nýja skauta
- Skal framkvæmd af fagmönnum, t.d. hjá starfsmönnum skautasvellsins
- Er háð aðstæðum t.d. umhirða skautanna og hversu oft er æft
Hvernig annast skal um skauta og skautablöð
- Lofta skal um skauta milli æfinga / geyma í mjúkum hlífum
- Þurrkið skauta og blöð eftir hverja notkun með t.d. litlu handklæði
- Nota skal plasthlífar til að ganga á fyrir utan ísinn. Geymið skauta ekki í þessum plasthlífum á milli æfinga þar sem blöðin geta ryðgað.