Markmið
- Að auka áhuga iðkenda á handknattleik og heilbrigðum lífsstíl.
- Að iðkendur læri undirstöðuatriði handknattleiks.
- Að skapa börnum og unglingum aðstæður til að stunda handknattleik undir stjórn hæfs þjálfara.
- Að yngri flokkastarfið sé samfellt frá yngstu flokkum til þeirra elstu.
- Að iðkendur læri að taka tillit til annarra og fari eftir þeim reglum sem deildin og félagið setja.
- Að þátttaka í félagsstarfi deildarinnar sé skemmtileg og gefandi.
- Að allir sem æfi handknattleik hjá Fjölni fái verkefni við sitt hæfi.
- Að starfa með skólum hverfisins þannig að hagsmunir beggja fari saman.
- Að skapa velvild í garð Fjölnis hjá iðkendum og foreldrum iðkenda án tillits til
handknattleiks-hæfileika. - Ala upp öfluga stuðningsmenn félagsins, dómara og stjórnarmenn.
- Að gefa áhugasömum og efnilegum þjálfurum tækifæri, ala þá upp og efla í starfi.
- Að þjálfunin skili leikmönnum upp í meistaraflokka félagsins.
- Stefnt skal að því að eldri flokkar félagsins séu í efstu deild og spili þar af leiðandireglulega við sterkustu leikmenn landsins.