7. FLOKKUR 8-9 ÁRA
Boðið er upp á þjálfun fyrir 8-9 ára stráka í 7. flokki. Iðkendur mæta í íþróttafötum og skóm.
7. flokkur kk 8-9 ára (2013-2014)
Fimmtudagar
kl. 14:40-15:30 / Fjölnishöll
Laugardagar
kl. 9:00-10:00 / Fjölnishöll
*Æfingatafla gildir tímabilið 2022-2023. Birt með fyrirvara um breytingar.
Upplýsingar um viðburði flokksins og óvæntar breytingar á áætlun koma fram á samskipta og skipulagsforritinu Sideline.

Stefán Friðrik Aðalsteinsson
Þjálfari

Óli Fannar Pedersen
Aðstoðarþjálfari
Skráning hér https://fjolnir.felog.is/.
Æfingagjöld handknattleiksdeildar má finna hér.
Handboltamarkmið
- Að kasta og grípa
- Að kasta og grípa á ferð
- Stuttar og langar sendingar
- Stíga í og fá boltann í réttu skrefi
- Að auka boltafærni og leikni
- Að kenna gabbhreyfingar í báðar áttir
- Að kenna leikstöðurnar og reglurnar í handbolta
Markmenn
- Allir sem vilja fá að prófa að spila markmannsstöðuna
- Að markmenn séu virkir á æfingum og taki þátt í æfingum útileikmanna í bland
- Enginn fastur í marki
Líkamleg markmið
- Sérstök áhersla á samhæfingu og tækni
- Að efla hreyfifærni með fjölbreyttum og krefjandi æfingum
- Að kenna rétta líkamsbeitingu í grundvallarhreyfingum
- Að kenna grunnstyrkæfingar með eigin líkamsþyngd í formi leikja
Félagsleg markmið
- Að æfingar séu skemmtilegar og fjölbreyttar
- Að viðhafa góðan aga á æfingum
- Að framfylgja reglum og siðum á æfingum
- Að kenna leikreglur í handbolta
- Að innleiða leiki meistaraflokks karla og kvenna sem skemmtun til að mæta á og hluta af þjálfun
- Axel Örn Sæmundsson
- Þrymill Þursi Arason
- Guðfastur Brjánn Pétursson
Nánari upplýsingar um þjálfara flokksins má finna hér