Fjáraflanir Fjölnis
Hér að neðan má sjá helstu samstarfsaðila Fjölnis hvað varðar fjáraflanir. Til að fá nánari upplýsingar er hægt að hafa samband við skrifstofu með því að senda póst á skrifstofa@fjolnir.is eða í síma 5782700.
Sameiginleg fjáröflun Fjölnis
Í október á hverju ári fer fram sameiginleg fjáröflun þvert á allar deildir þar sem iðkendur fá tækifæri til að safna fyrir ferðum, mótum og öðrum verkefnum tengdri íþróttinni.
Dósasafnanir
Sameiginlegar dósasafnanir félagsins eru haldnar nokkrum sinnum yfir árið. Hver og ein söfnun er auglýst sérstaklega.

Papco
Papco er einn af aðalstyrktaraðilum Fjölnis og styður við starf félagsins með öflugu samstarfi. Fyrirtækið býður einnig upp á einfaldar og árangursríkar fjáröflunarleiðir fyrir deildir og iðkendur, þar sem hægt er að selja meðal annars klósettpappír, eldhúspappír og ýmsar aðrar heimilisvörur. Með slíkum verkefnum geta iðkendur safnað fjármagni fyrir ferðir, mót og aðra starfsemi tengda íþróttinni.

Ölgerðin
Ölgerðin er einn af aðalstyrktaraðilum Fjölnis og styður við starf félagsins með öflugu samstarfi. Fyrirtækið býður upp á fjölbreytt úrval vara sem henta vel fyrir sjoppusölu á mótum, leikjum og viðburðum á vegum félagsins. Þar má finna meðal annars drykkjarvörur og ýmislegt annað sem nýtist vel í sölu á íþróttaviðburðum. Með slíkri sölu geta deildir og iðkendur aflað tekna sem nýtast til að standa straum af kostnaði við mót, ferðir og aðra starfsemi.

Aldan
Aldan, fiskbúðin í hverfinu sem er staðsett Spönginni, er mikilvægur samstarfsaðili Fjölnis. Verslunin býður upp á fjáröflun fyrir iðkendur þar sem hægt er að kaupa gjafabréf á 4.000 krónur og selja á 5.000 krónur, þar sem ágóðinn rennur til viðkomandi liðs eða hóps.
Auk þess býður Aldan öllum iðkendum og foreldrum Fjölnis í öllum deildum 10% afslátt í versluninni gegn því að sýna fram á tengsl við félagið. Meðlimir í stuðningsmannaklúbbnum 112unni fá jafnframt 15% afslátt gegn því að framvísa korti.

Hvernig fara fjáraflanir fram
Fjáraflanir eru einfaldar í framkvæmd og henta vel fyrir lið, flokka og hópa innan félagsins.
Skipulag: Deild, lið eða foreldrahópur ákveður að fara í fjáröflun og velur hvaða vörur eða verkefni henta best hverju sinni. Sett er upp pöntunarferli og auglýsingar í samráði við skrifstofu félagsins.
Sala: Iðkendur selja vörur til fjölskyldu, vina, nágranna eða í gegnum samfélagsmiðla.
Afhending: Þegar sala hefur farið fram eru vörur afhentar til kaupenda samkvæmt samkomulagi.
Ágóði: Hluti af söluverðinu rennur til liðsins eða flokksins og nýtist til að standa straum af kostnaði við ferðir, mót og aðra starfsemi.
