Við bjóðum uppá leigu á fimleikasalnum okkar í Fjölni fyrir afmæli eða viðburði. Athugið að bókanir fara fram hér á heimasíðunni eða inná Noona
Hægt er að senda línu ef það eru sérstakar fyrirspurnir á fimleikasalur@fjolnir.is
FIMLEIKASALURINN
Í salnum eru þrjú stór trampolín, púðagryfjur, ásamt öllum helstu fimleikaáhöldum.
AÐSTAÐA FYRIR VEITINGAR
Við bjóðum uppá leigu á rými þar sem hægt er að bjóða uppá veitingar. Þar eru borð og bekkir fyrir einn hóp en koma þarf með allan borðbúnað að heiman svo sem glös, diska, vatnskönnur og önnur áhöld.
Mikilvægt að ALLT rusl sé tekið og gengið sé vel um svæðið.
Vinsamlegast athugið að það er einungis pláss fyrir einn hóp í einu í þessari aðstöðu.
Gert er ráð fyrir að hver hópur sé rétt rúmlega 30 mínútur í rýminu.
VERÐSKRÁ
60 mín í fimleikasal = 30.000 kr
60 mín í fimleikasal + veitingarými í 30 mín = 35.000 kr
60 mín einkaleiga á fimleikasal = 45.000 kr ( þú tryggir þér að það sé enginn annar hópur í salnum á sama tíma, hámarksfjöldi 60 manns )
Hægt að bæta við veitingarými =50.000 kr en veitingarýmið tekur sirka 45 í sæti við borð en salurinn rúmar vel stærri hóp
- Passa að velja rétt ef þið viljið hafa veitingarými, athuga ef valmöguleikinn kemur ekki upp þá er það ekki laust á þessum tíma
- Athugið að aðeins einn hópur í einu getur fengið afnot að veitingaastöðunni í einu
- Hámarksfjöldi per hóp eru 30 manns.
- Möguleiki að fleiri hópar séu í salnum á sama tíma, nema ef um einkaleigu er að ræða
- *Á föstudögum er aðeins boðið upp á einkaleigu
LEIGUTÍMAR
Alla jafna eru þessar tímasetningar í boði til leigu. Þeir tímar sem eru í boði eða eru lausir að hverju sinni birtast í dagatalinu á okkar svæði hjá noona.is
Föstudagar
- 21:00-22:00
Laugardagar
- 14:00-15:00
- 15:00-16:00
- 16:00-17:00
- 17:00-18:00
- 18:00-19:00
Athugið að veitingarýmið er alltaf eftir að tímanum í fimleikasalnum er lokið.
BÓKANIR
Bókanir fara fram hér á síðunni eða inná www.noona.is
Ekki er hægt að bóka salinn með skemmri fyrirvara en 3 dagar.
Greiðsluupplýsingar birtast í bókunarferlinu og hér á síðunni
Greiða þarf fyrir salinn innan við sólahring frá því það er bókað til þess að halda þínum tíma
Greiðsluupplýsingar
rkn. 0133-15-200692
kt. 631288-7589
Mikilvægt er að setja nafn þess sem bókar salinn í skýringu þegar gengið er frá greiðslu
SKILMÁLAR
- Ef ekki er búið að ganga frá greiðslu á tilsettum tíma þá áskilur deildin sér rétt til þess að leigja öðrum salinn.
- Afbókun þarf að berast eigi síðar en 2 dögum fyrir leigudag. Að öðrum kosti mun deildin innheimta 1/2 leiguverðs, skv. verðskrá.
- Salurinn er ávallt leigður með þjálfara til þess að reglum sé fylgt ásamt því að auka öryggi þeirra sem mæta.
- Leigutaki ber samt sem áður fulla ábyrgð á þeim einstaklingum sem eru á þeirra vegum í fimleikahúsi Fjölnis.
- Við áskilum okkur rétt til þess að afbóka tíma (með fyrirvara) ef upp koma aðstæður sem krefjast þess.
Ég er búin/nn að bóka, upplýsingar sem er gott að vita
- Það er æskilegt að biðja gesti að koma 5-10 mínútum áður en ykkar tími í fimleikasalnum hefst.
- Hópurinn getur þá safnast saman í andyrrinu hjá fimleikasalnum
- Starfsmaður hleypir hópnum svo inn í sal þegar það er komið að ykkar tíma og fer yfir reglur
- Ef þið eruð með veitingar þá meigið þið geyma þær í þjálfaraherberginu þangað til veitingarýmið er laust fyrir ykkur
- Athuga að það er ekki vatnshani nálægt salnum
- Göngum vel um veitingarými, hendum rusli eftir okkur í gáma og þurrkum yfir borð og sæti og sópum létt yfir gólf fyrir næsta hóp.
Á staðnum
- Ruslapokar
- Hreinsiefni og tuskur verða til staðar