Reglugerð um veitingu viðurkenninga

1. grein

Aðalstjórn Ungmennafélagsins Fjölnir getur veitt þeim, sem unnið hafa störf fyrir félagið viðurkenningu eftir því sem segir í reglugerð þessari.

2. grein

Viðurkenningar félagsins eru eftirfarandi:
Heiðursforseti
Heiðursfélagi
Gullmerki
Silfurmerki

3. grein

Um gull- og silfurmerki gildir, að aðalstjórn félagsins fær sendar inn ábendingar/ tilnefningar frá stjórnum deilda. Aðalstjórn tekur endanlega ákvöðun um veitingu viðurkenninga til einstaklinga. Allar viðkenningar félagsins eru afhentar á aðalfundi félagsins ár hvert, eða á sérstökum viðburði félagsins, sem auglýstur verður sérstaklega.

4. grein

Heiðursforseti félagsins er æðsta viðurkenning félagsins, sem veita má þeim einstaklingum, sem sinnt hafa formennsku í aðalstjórn félagsins í a.m.k. sjö ár, eða þeim einstaklingum sem þykja hafa unnið sérstaklega vel í málefnum félagsins um árabil. Tilnefningar um heiðursforseta þurfa að hafa stuðning a.m.k. 5 einstaklinga frá aðalstjórn og hið minnsta frá 3 deildum félagsins. Tilnefningar skulu berast skriflega til aðalstjórnar eigi síðar en 4 vikum fyrir aðalfund. Tilnefningar skal bera undir sameiginlegan fund aðalstjórnar og formanna deilda félagsins og eru aðeins samþykktar ef a.m.k. 4/5 hluti þeirra sem mæta á fundinn eru sammála niðurstöðunni.

5. grein

Heiðursfélagi er næst æðsta viðurkenning sem veitt er til almennra félagsmanna. Hana má veita til þeirra, sem starfað hafa vel og dyggilega fyrir félagið í 20 ár eða lengur. Tilnefningar um heiðursfélaga þurfa að hafa stuðning a.m.k. 3 einstaklinga frá aðalstjórn og hið minnsta 2 deildum félagsins. Tilnefningar skulu berast skriflega til aðalstjórnar eigi síðar en 4 vikum fyrir aðalfund. Tilnefningar skal bera undir sameiginlegan fund aðalstjórnar og formanna deilda félagsins og eru aðeins samþykktar ef a.m.k. 4/5 hluti þeirra sem mæta á fundinn eru sammála niðurstöðunni.

6. grein

Gullmerkið er viðurkenning félagsins, sem veita má þeim sem starfað hafa í stjórnum í 10 ár eða lengur, eða hafa með öðrum hætti unnið vel og dyggilega fyrir félagið. Merkið er einnig veitt fyrir sérstök íþróttaafrek.

7. grein

Silfurmerki félagsins er viðurkenning, sem veita má þeim, sem starfað hafa í stjórnum í 5 ár eða lengur, eða hafa með öðrum hætti unnið vel og dyggilega fyrir félagið. Merkið er einnig veitt fyrir sérstök íþróttaafrek.

8. grein

Stjórn félagsins skal halda fundagerðabók, þar sem skrá skal sérstaklega alla handhafa viðurkenninga.

9. grein

Þeir sem hljóta heiðursviðurkenningar félagsins hafa einir rétt til þess að bera þær og er óheimilt að framselja þær, eða láta þær af hendi.

10. grein

Reglugerð þessari verður einungis breytt af aðalstjórn félagsins, sjá 15. grein í lögum félagsins.

UNGMENNAFÉLAGIÐ FJÖLNIR

Egilshöll | Fossaleyni 1 | 112 Reykjavík | Kt. 631288-7589

Opnunartími skrifstofu

Mánudaga – fimmtudaga
09:00-12:00 og 13:00-16:00

Föstudaga
09:00-12:00

Símatími skrifstofu

Mánudaga – fimmtudaga
10:00-11:30

Sími: 578-2700

Hafðu samband

skrifstofa@fjolnir.is

Translate »