lög félagsins


Lög Ungmennafélagsins Fjölnis, samþykkt á aðalfundi 8. apríl 2025.

 

Nafn, heimili, tilgangur og auðkenni félagsins

1. grein

Félagið heitir Ungmennafélagið Fjölnir. Heimili félagsins og varnarþing er í Grafarvogi, Reykjavík.

2. grein

Tilgangur félagsins er að auka áhuga félagsmanna og almennings á almennri heilsueflingu, líkamsrækt og stuðla að alhliða íþróttaiðkun, auka áhuga félagsmanna á hverskonar félags- og tómstundastarfi og vinna gegn neyslu skaðlegra vímugjafa.

3. grein

Markmiðum sínum hyggst félagið ná með virku og öflugu félagsstarfi, íþróttaæfingum, afreksstarfi, námskeiðum og verkefnum sem nauðsynlegar eru hverju sinni.

4. grein

Allir iðkendur og forráðamenn þeirra teljast félagsmenn. Einnig getur hver sá orðið félagi, er sækir skriflega um inngöngu í félagið, gangast vill undir lög þess og greiðir félagsgjald. Úrsögn úr félaginu skal tilkynna skriflega til skrifstofu félagsins, sem jafnframt sér um innheimtu félagsgjalda.

5. grein

Búningar félagsins skulu vera háðir samþykki aðalstjórnar hverju sinni. Aðal litir félagsins eru gulur og blár og skulu búningar félagsins vera í þeim litum, en aðalstjórn getur veitt undanþágu frá því. Merki félagsins skal vera áberandi á búningum nema annað sé viðeigandi í viðkomandi grein. Samninga í nafni félagsins um búninga skal bera undir aðalstjórn til samþykktar.

6. grein

Merki félagsins er skjöldur með tveimur F-um, sem vísa hvort á móti öðru. Breytingar á merki félagsins eru háðar samþykki aðalfundar félagsins.

 

Stjórnun félagsins

7. grein

Aðalfundur er æðsta vald í öllum málefnum félagsins. Allir félagsmenn, 18 ára og eldri, sem ekki skulda iðkenda- eða félagsgjöld til félagsins hafa atkvæðisrétt á aðalfundi.

Aðalfund skal halda fyrir lok maí ár hvert. Boða skal aðalfund með minnst sjö daga fyrirvara og auglýsa á sem víðtækastan hátt en að lágmarki á miðlum félagsins. Aðalfundur er löglegur ef löglega er til hans boðað.

Í aðalfundarboði skal kynna dagskrá, fundartíma og fundarstað. Þá skal geta sérstaklega í fundarboði hvenær frestur til að skila inn tillögum að lagabreytingum rennur út sem og um um framboðsfrest til stjórnarsetu.

Dagskrá aðalfundar skal vera:

a) Skýrsla stjórnar
b) Reikningar félagsins
c) Lagabreytingar
d) Kjör formanns
e) Kjör stjórnarmanna
f) Kjör skoðunarmanna reikninga
g) Ákvörðun félagsgjalda
h) Önnur mál

Lögum félagsins verður ekki breytt nema á aðalfundi félagsins undir dagskrárliðnum ,,lagabreytingar” og þá með fulltingi 2/3 hluta atkvæðisbærra fundarmanna. Tillögur til breytinga á lögum félagsins, undirritaðar af flutningsmönnum, skulu sendar aðalstjórn félagsins eigi síðar en 5 dögum fyrir boðaðan aðalfund. Aðalstjórn skal kynna á heimasíðu og/eða miðlum félagsins allar tillögur um lagabreytingar og framboð a.m.k 4 dögum fyrir aðalfund.

Á aðalfundi ræður einfaldur meirihluti úrslitum mála nema ef mál falla undir 5. mgr. 7. gr. laga þessara og eins ef leggja á félagið niður. Kosningar skulu vera skriflegar ef þess er óskað af einum eða fleiri fundarmönnum. Ef atkvæði standa á jöfnu falla mál niður.

8. grein

Stjórn félagsins er skipuð sjö einstaklingum og allt að tveimur til vara. Kosning til stjórnar skal fara þannig fram:

a) kosning formanns til eins árs,
b) kosning sex meðstjórnenda til tveggja ára, þannig að þrír eru kosnir á hverju ári,
c) kosning tveggja manna í varastjórn til eins árs.

Varamenn taka sæti í stjórn ef aðalmaður forfallast í sömu röð og þeir eru kosnir.

Allir félagsmenn félagsins sem eru fjárráða geta boðið sig fram til formanns. Aðalstjórnarmaður félagsins getur ekki samtímis verið í stjórn deildar eða starfsmaður félagsins. Tilkynningar um framboð til formanns og meðstjórnenda félagsins skulu berast skrifstofu félagsins minnst 5 dögum fyrir boðaðan aðalfund. Ef ekki berast næg framboð fyrir tilskilinn tíma er heimilt að bjóða sig fram á aðalfundinum og skulu þeir sem tilkynntu framboð sín innan framboðsfrests teljast kjörnir en kosið á milli annarra. Hafi framboð verið tilkynnt innan framboðsfrests en viðkomandi frambjóðandi ekki náð kjöri sem aðalmaður er viðkomandi heimilt að gefa kost á sér á fundinum til setu í varastjórn.

Formaður er kosinn beinni kosningu á aðalfundi, en að öðru leyti skiptir stjórnin sjálf með sér verkum.

Aðalstjórn stýrir málefnum félagsins milli félags- og aðalfunda. Stjórnin sér til þess, að skipulag og starfsemi félagsins sé jafnan í réttu og góðu horfi og í samræmi við lög félagsins.

Á aðalfundi skulu einnig kosnir tveir skoðunarmenn reikninga en í þeirra stað má kjósa einn löggiltan endurskoðanda.

9. grein

Reikningsár félagsins er almanaksárið. Aðalstjórn er ábyrg gagnvart aðalfundi fyrir fjárreiðum og eignum félagsins. Deildarstjórnir eru ábyrgar fyrir rekstri sinna deilda gagnvart aðalstjórn og aðalfundum deilda. Reikningar félagsins skulu liggja frammi minnst viku fyrir aðalfund til skoðunar fyrir félagsmenn.

10. grein

Formaður félagsins og/eða framkvæmdastjóri rita félagið samkvæmt undirrituðum fundarsamþykktum stjórnar. Stjórn félagsins veitir prókúruumboð og allar fjárskuldbindingar félagsins og deilda þess eru háðar samþykki prókúruhafa, en meiriháttar skuldbindingar krefjast samþykkis meirihluta aðalstjórnar. Óheimilt er að skuldbinda félagið eða deildir þess með persónulegum ábyrgðum einstaklinga. Allir samningar gerðir í nafni Ungmennafélagsins Fjölnis eða deilda þess skulu áritaðir af formanni og/eða framkvæmdastjóra félagsins.

Aðalstjórn tekur endanlega ákvörðun um öll aðstöðumál, svo sem hvort byggja eigi aðstöðu, taka á leigu, flytja starfsemi deildar o.s.frv.

11. grein

Ef reikningar félagsins eru felldir í atkvæðagreiðslu á aðalfundi skal fundinum slitið strax og boðað til framhaldsaðalfundar innan 4 vikna. Stjórn leggur fyrir framhaldsaðalfund nýja reikninga til samþykktar. Framhaldsaðalfund skal boða á sama hátt og aðalfund og gilda um hann sömu reglur og hefur hann sama vald og um aðalfund væri að ræða.

12. grein

Aðalstjórn tilnefnir fulltrúa félagsins á sambandsþing heildarsamtaka íþróttahreyfingarinnar. Aðalstjórn er heimilt að skipa nefndir til starfa eftir því sem þurfa þykir.

13. grein

Aðalstjórn skiptir öllum tekjum sem ekki koma inn á svið deilda, þ.m.t félagsgjöldum og Lotto.

14. grein

Fulltrúar aðalstjórnar hafa rétt til að sitja alla fundi félagsins og deilda þess. Samráðsfundur formanna allra deilda með aðalstjórn skal haldinn minnst einu sinni á ári. Alla stjórnarfundi félagsins, sem og félags- og aðalfundi, skal skrá, ýmist í fundargerðarbækur eða með öðrum hætti og varðveita.

15. grein

Heiðursveitingar Fjölnis eru: Silfurmerki, Gullmerki, heiðursfélagi Fjölnis og heiðursforseti Fjölnis. Heiðursráð Fjölnis skipa heiðursforsetar félagsins og heiðursfélagar Fjölnis. Heiðursráð er aðalstjórn félagsins til ráðuneytis og kemur saman að ósk aðalstjórnar. Aðalstjórn setur nánari reglur um starfsemi heiðursráðs. Stjórn félagsins tekur ákvarðanir um heiðursveitingar og setur nánari reglur um þær. Tilkynna skal um heiðursveitingar á aðalfundi og/eða á sérstakri uppskeruhátíð félagsins ár hvert.

 

Stjórnun deilda og meistaraflokka

16. grein

Aðalfundir deilda skulu haldnir fyrir lok maí ár hvert. Reikningsár deilda er almanaksárið. Með boðun, dagskrá, kjörgengi og atkvæðarétt aðalfunda deilda skal fara eins og um aðalfund félagsins væri að ræða utan lagabreytingaákvæði en aðalfundir deilda hafa ekki heimild til lagabreytinga.

Allar deildir félagsins skulu skila til aðalstjórnar samþykktum reikningum deilda minnst tveimur vikum fyrir aðalfund. Aðalstjórn er heimilt að setja vinnureglur sem varða bókhald deilda, bókhaldsskil og uppgjör og víkja deildarstjórn frá störfum ef störf hennar brjóta í bága við reglur um fjárreiður félagsins. Skal stjórn félagsins þá taka við störfum deildarstjórnar þar til hægt er að halda aðalfund viðkomandi deildar og kjósa nýja deildarstjórn.

Hafi deild ekki haldið aðalfund innan tilskilinna tímamarka, eða ekki náð að skila samþykktum reikningum fyrir undangengið reikningsár til stjórnar minnst tveimur vikum fyrir aðalfund félagsins, telst deildin hafa vanrækt að halda aðalfund á tilsettum tíma og skal þá aðalstjórn félagsins boða til fundarins og sjá um framkvæmd hans.

17. grein

Stjórn hverrar deildar skal skipuð þremur til sjö einstaklingum, formanni sem kosinn er á aðalfundi viðkomandi deildar og tveimur til sex meðstjórnendum og allt að tveimur til vara, einnig kjörnum á aðalfundinum.

Tillögur um stjórnarmenn skulu berast til skrifstofu minnst 5 dögum fyrir boðaðan aðalfund. Ef ekki berast næg framboð fyrir tilskilin tíma er heimilt að bjóða sig fram á aðalfundinum og skulu þeir sem tilkynntu framboð sín innan framboðsfrests teljast kjörnir en kosið á milli annarra. Hafi framboð verið tilkynnt innan framboðsfrests en viðkomandi frambjóðandi ekki náð kjöri sem aðalmaður er viðkomandi heimilt að gefa kost á sér á fundinum til setu í varastjórn.

Endurskoðandi/skoðunarmenn reikninga félagsins hafa eftirlit með reikningum deilda. Deildarstjórn skiptir sjálf með sér verkum. Kjörtímabil deildarstjórna er á milli aðalfunda viðkomandi deilda.

Deildarstjórn getur sett sér og deild sinni vinnureglur brjóti þær ekki í bága við lög félagsins. Skrifstofa félagsins skal halda félagaskrá í samráði við aðalstjórn félagsins.

18. grein

Heimilt er að starfrækja meistaraflokka innan félagsins að uppfylltum skilyrðum laga þessara, en einungis utan reksturs hefðbundins barna- og unglingastarfs (í samræmi við kröfur ÍSÍ um aðskilnað þessara rekstrareininga). Rekstur meistaraflokka skal vera bókhalds- og félagslega sjálfstæður.

Deildarstjórn getur ein óskað eftir því við aðalstjórn að meistaraflokkar sé starfræktir í þeirri íþróttagrein sem deildina varðar. Aðalstjórn metur rekstrar- og félagslegan grundvöll fyrir slíkum rekstri og veitir eða hafnar heimild til reksturs. Veiti aðalstjórn leyfi til rekstursins skal skipa meistaraflokksráð og ber það ábyrgð á viðkomandi rekstri gagnvart deildarstjórn. Aðalstjórn félagsins hefur heimild til að setja reglur um leikmannasamninga og hefur jafnframt eftirlit með framkvæmd þeirra í samræmi við 10. grein.

Uppgjör vegna reksturs meistaraflokka skal kynnt sérstaklega á aðalfundi félagsins ár hvert en vera hluti af rekstrar- og efnahagsreikningi félagsins. Stjórn deildar skal leggja fram rekstrar- og tekjuáætlun fyrir hvert keppnistímabil fyrir sig til aðalstjórnar til samþykktar og er hún bindandi fyrir stjórn meistaraflokksins. Stjórnum deilda og meistaraflokksráðum er óheimilt að skuldbinda félagið með nokkrum hætti nema með samþykki framkvæmdastjóra.

19. grein

Ósk félagsmanna um stofnun nýrrar deildar skal bera fram við aðalstjórn félagsins. Stjórn tekur ákvörðun um stofnun nýrrar deildar á grundvelli markmiða félagsins.

Ef engin starfsemi er í deild getur stjórn ákveðið að leggja deildina niður tímabundið eða endanlega. Eignir / skuldir viðkomandi deildar verða þá í vörslu stjórnar eða renna í aðalsjóð félagsins.

Brjóti stjórn eða starfsemi deildar að mati aðalstjórnar gegn lögum félagsins og stjórn deildarinnar skirrist við að fara að fyrirmælum aðalstjórnar um úrbætur er aðalstjórn félagsins heimilt að stöðva starfsemi deildar í heild eða hluta og/eða leggja starfsemi deildar niður ef brot er ítrekað eða alvarlegt.

 

Önnur ákvæði

20. grein

Ungmennafélagið Fjölnir er aðili að ÍBR og er félaginu skylt að virða lög þess.

21. grein

Til að félagið verði lagt niður þarf samþykki 2/3 hluta greiddra atkvæða á aðalfundi og skal þá stjórnin boða til aukaaðalfundar sem verður einnig að samþykkja tillöguna með 2/3 hluta greiddra atkvæða. Verði félagið lagt niður skal afhenda eigur þess til Íþróttabandalags Reykjavíkur til varðveislu, en ef hliðstætt félag verður stofnað innan hverfisins síðar skulu eignir þess afhentar hinu nýja félagi til afnota.

22. grein

Lög þessi öðlast gildi þegar þau hafa verið samþykkt á aðalfundi félagsins og falla þá jafnframt úr gildi fyrri lög félagsins.