Ísbirnir
Ísbirnir eru að læra fyrstu skrefin á ísnum, læra helstu jafnvægisæfingar, skauta áfram og afturábak og stoppa. Eru að vinna í rauðu og gulu nælunni. Allir nýjir iðkendur fara í Ísbirni. Iðkendur á aldrinum 3-5 ára æfa einu sinni í viku.
Ísbirnir 5-12 ára
Æfingar á svelli
Miðvikudagar kl. 16:20-17:00
Laugardagar kl. 12:20-13:00
Ísbirnir 3-5 ára
Æfingar á svelli
Laugardagar kl. 12:20-13:00
Ísbirnir 5-12 ára
Afísæfingar
Miðvikudagar kl. 17:15-17:50
Laugardagar kl. 11:30-12:05
Ísbirnir 3-5 ára
Afísæfingar
Laugardagar kl. 11:30-12:05
Upplýsingar um viðburði flokksins og óvæntar breytingar á áætlun koma fram á samskipta og skipulags forritinu Sideline

Sólbrún Erna Víkingsdóttir
Yfirþjálfari og umsjón

Helga Karen Pedersen
Þjálfari

Lorelei Murphy
Þjálfari

Aníta Lórenzdóttir
Aðstoðarþjálfari

Vigdís Björg Einarsdóttir
Aðstoðarþjálfari

Kamila Melo
Danskennari

Alexander Medvedev
Þrekþjálfari
Innifalið í æfingagjöldum:
- 2 æfingar á svelli í viku
- 1 afísæfing í viku
- 1 danstími í viku
- Skautanælur (Skautum regnbogann)
- Lán á skautum og hjálm
Æfingagjöld listskautadeildar má finna hér.
Æfingar
Æfingar fara fram á svelli og einnig er afís. Á afís er markmiðið
- að bæta liðleika, þol og styrk,
- kynnast mismunandi tegund tónlistar og hreyfingum sem tengjast henni,
- að iðkendur læri orðaforða og æfingar sem tengjast því sem notað er í skautakennslu.
Til að ná framförum er nauðsynlegt að mæta á æfingar bæði á afís og svelli.
Gott er að hafa með sér smá nesti sem hægt er að borða á milli æfinga, t.d. ávexti/grænmeti/safa, en allt nammi og gos er bannað. Iðkendur geta borðað nesti sitt í félagsheimili deildarinnar, við borðin fyrir framan svellið eða fyrir framan íþróttasalinn en bannað er að vera með mat eða drykki inni í íþróttasalnum. Allir skulu ganga frá eftir sig eftir að nestistíma er lokið.
Ísbirnir eru byrjendahópur og helstu áherslur eru á að læra undirstöðuatriði íþróttarinnar og ná góðum tökum á jafnvægi og hraða.
Undirstöðuatriði íþróttarinnar eru:
- Líkamsburður og líkamshalli
- Notkun á hnjám (að beygja hnén)
- Notkun á ökklum
- Rennsli
- Brúnir, notkun brúna og notkun líkamsþyngdar
- Taktur og samhæfing
- Aukning á hraða og takti smám saman
- Rétt spyrna
Fatnaður
Á æfingum eiga skautarar að vera í hlýjum og teygjanlegum fatnaði, t.d. flísbuxum og flíspeysu og vera í fingravettlingum. Ekki má mæta í fatnaði með löngum reimum, víðum fatnaði, hettupeysum né með trefil. Á afís á að vera í íþróttafötum og strigaskóm.
Æfingar utan hefðbundinna æfingatíma
Boðið er upp á heilsdags sumarnámskeið í júní og ágúst. Á námskeiðunum eru æfingar á svelli, gólfi, leikir og útivera. Gott er að iðkendur mæti í sumarbúðir en á þessum tíma er unnið að bæta grunnskautun og tækni. Ef iðkandi tekur frí allt sumarið er líklegt að hann hafi misst niður tækni sem getur tekið nokkrar vikur að vinna upp aftur að hausti.
Mót
Iðkendur Skautaskólans taka ekki þátt á mótum.
Foreldrar
Foreldrar eru hvattir til að fylgjast með æfingum á svelli og er þeim velkomið að sitja í stúkunni og fylgjast með æfingum. Hins vegar viljum við biðja foreldra að virða vinnusvæði þjálfara og iðkenda. Því er ekki heimilt að sitja eða standa við svæðið fyrir aftan svellið (við gluggana), vera í klefanum fyrir neðan stúkuna, á ísnum eða í íþróttasal á meðan á þjálfun stendur. Ennfremur er óheimilt að eiga í samskiptum við iðkendur og þjálfara á meðan á æfingu stendur.
Afísæfingar fara aðallega fram í íþróttasal og eru foreldrar beðnir um að vera ekki inni á meðan kennsla stendur yfir.
- Axel Örn Sæmundsson
- Þrymill Þursi Arason
- Guðfastur Brjánn Pétursson
Nánari upplýsingar um þjálfara flokksins má finna hér