“Teamwork makes the dream work.”

Við hjá knattspyrnudeild Fjölnis höfum ýtt úr vör, við góðar undirtektir, Baklandinu sem er hugsað sem öflugur fjárhagslegur og félagslegur stuðningsaðili meistaraflokka KK og KVK í knattspyrnu. Uppleggið er að Baklandið samanstandi af aðilum sem vilja styðja við meistaraflokka félagsins með því að greiða árgjald sem er umtalsvert hærra en verð á hefðbundnum ársmiðum.

 

Árgjald: 100.000 kr. ári
Innifalið eru tveir ársmiðar á heimaleiki KK + KVK og veitingar í hálfleik

 

(Hægt er að dreifa greiðslum á allt að 12 mánuði)

Einnig bjóðum við aðilum sem kjósa að ganga frá inngöngu í Baklandið í gegnum fyrirtæki á sínum vegum að gera það með þeim hætti að sendur er styrktarreikningur á viðkomandi fyrirtæki. Lágmarks ársgjald fyrir þessa leið er 100.000 kr. Fjöldi ársmiða sem fylgja aðild sem greidd er með þessu er hætti ræðst að fjárhæð árgjalds en þó aldrei færri en tveir ársmiðar sbr. aðild að Baklandi 1.

Hægt er að ganga frá einstaklingsaðild með einföldum hætti í gegnum Iðkendakerfi Fjölnis en hafa þarf samband við geir@fjolnir.is sé áhugi á að ganga frá aðild í gegnum fyrirtæki.

Smelltu hér til að ganga í Baklandið.