VERKÍS FIRMAKEPPNIN Í SKÁK

 Ágægi skákunnandi !

Skákdeild Fjölnis býður til spennandi Firmamóts í skák, í Tjarnarsal Ráðhússins miðvikudaginn 9.maí kl: 16-19.

 


 

Hægt er að hlusta á viðtal þar sem að hugmyndin á bak við mótið er skýrð: http://vefutvarp.visir.is/upptokur?itemid=11099

Um er að ræða sveitakeppni, þrír í liði ásamt varamönnum. Mótið óvenjulegt að því leiti að það er sniðið að almennum skákáhugamönnum og starfsmönnum fyrirtækja, sem að hingað til hafa látið sér nægja að grípa í tafl á kaffistofunni.

 

Þáttökugjald er 50 þúsund krónur, en heildarverðlaun mótsins eru varlega áætluð að verðmæti yfir 750 þúsund krónur, sem að gerir mótið eitt það allra veglegasta sem að haldið er hér á landi.

 

Til að fá sem jafnasta og spennandi keppni er styrkleiki hvers liðs takmarkaður við 5.500 stig.

 

Til að hvetja stigalausa til að vera með þá eru þeir reiknaðir með aðeins 1000 stig.

 

Fyrirtæki geta líka fengið lánsmann, sem að gæti sett liðið mjög nálægt stigaþakinu ef að þau kjósa svo eða eru í vandræðum með að manna sveit. Einnig er hægt að styrkja mótið með því að senda sveit eða láta mótshaldara eftir að setja saman sveit, sem að alfarið er skipuð lánsmönnum sem að tefla þá í nafni fyrirtækisins og félagsins.

 

Það getur því enginn séð fyrir hvaða lið vinnur mótið og öll lið eiga möguleika!
Það er mjög líklegt að meðal sigurvegaranna leynist skákmenn sem að ekki hafa áður teflt opinberlega!

 

Það á að vera fyrirhafnarlaust að senda inn lið. Um að gera að láta okkur vita ef að við getum orðið að liði með einhverjum hætti með tölvupósti. Við leysum úr hvers manns vanda!

 

Aðbúnaður í Tjarnarsal Ráðhússins er eins og best verður á kosið, með m.a. fríum veitingum fyrir keppendur, skák sýnd í beinni á sýningartjaldi, björtum og rúmgóðum sal o.s.frv.

 

Verkís er aðalstyrktaraðili mótsins. Verkís fangar 80 ára afmæli í ár, en verkfræðistofan rekur uppruna sinn til ársins 1932 og er því elsta verkfræðistofa landsins. Verkís er öflugt og framsækið ráðgjafafyrirtæki sem býður fyrsta flokks þjónustu á öllum sviðum verkfræði. Hjá fyrirtækinu starfa yfir 300 starfsmenn að fjölbreyttum verkefnum á Íslandi og erlendis. Verkefnin eru m.a. á sviði bygginga, samgöngumannvirkja, iðnaðar og virkjana, bæði vatnafls og jarðvarma. Ingibjörg Lilja, kynningarstjóri hjá Verkís segir: "með því að styrkja Firmamótið í skák vonast Verkís til að efla skákíþróttina ekki síst meðal ungu kynslóðarinnar. Skákin krefst útsjónarsemi, skipulagningar, strategíu og þess að hugsa fram í tímann, en allt eru þetta mikilvægir þættir í verkfræði. Við vonumst þannig til að styrkja grunninn hjá hæfileikaríkum verkfræðingum framtíðarinnar."

 




Einnig er Iceland Express bakhjarl mótsins.

Firmakeppnin er á Facebook.

Við hvetjum þig til að gerast vinur síðunnar!

http://www.facebook.com/profile.php?id=100003387882089&ref=tn_tnmn

 Nánar má lesa um verðlaunin í mótinu hér:

http://firmakeppnin.blog.is/blog/firmakeppnin/

Við hvetjum þig til að hafa frumkvæði í málinu og vekja athygli á keppninni innan þíns fyrirtækis eða félags og gjarnan hafa samband við okkur þ.a. við getum unnið saman að því að sannfæra fyrirtækið þitt til að senda lið!

Vonumst til að eiga skemmtilega upplifun með þér á mótinu!

Með von um jákvæð viðbrögð, stuðning og skemmtilegt samstarf,

Helgi Árnason, formaður skákdeildar Fjölnis, gsm 664-8320
Héðinn Steingrímsson, stórmeistari og Íslandsmeistari í skák

Þátttökutilkynning og fyrirspurnir: firmakeppnin@gmail.com

 

 

 

 

 

 

Aftur á forsíðu