5. FLOKKUR 12-13 ÁRA


Boðið er upp á þjálfun fyrir 12-13 ára stráka í 5. flokki. Iðkendur mæta í íþróttafötum og skóm.

5. flokkur 12-13 ára (2010-2011)

Mánudagar
kl. 18:30-19:30 / Fjölnishöll

Miðvikudagar
kl. 16:30-17:30 / Fjölnishöll

Fimmtudagar
kl. 16:00-17:00 / Fjölnishöll

Laugardagar
kl. 10:45-11:45 / Fylkishöll (sameiginleg æfing með Fylki)

*Æfingatafla gildir tímabilið 2023-2024. Birt með fyrirvara um breytingar.

Upplýsingar um viðburði flokksins og óvæntar breytingar á áætlun koma fram á samskipta og skipulagsforritinu XPS Network.

Grétar Eiríksson

Þjálfari

Elvar Þór Ólafsson

Aðstoðarþjálfari

Hallgrímur Jónasson

Markmannsþjálfari

Ingi Rafn Róbertsson

Styrktarþjálfari

Skráning hér https://fjolnir.felog.is/.

Æfingagjöld handknattleiksdeildar má finna hér.

Handboltamarkmið

  • Að þjálfa fjölbreytta sendingargetu og skottækni
  • Að auka boltafærni og leikni
  • Að kenna fjölbreytta skottækni
  • Að kenna rétta taktík við skot á mark
  • Að hefja skipulögð hraðaupphlaup
  • Leggja áherslu á „maður á mann“ í vörn með réttri fótavinnu
  • Að kenna samvinnu með línumanni
  • Kenna 3:2:1 og 5:1 varnarafbrigði og kynna 6:0
  • Að kenna uppstökk af bæði hægri og vinstri fæti
  • Halda áfram að kenna innleysingar úr öllum stöðum
  • Að þjálfa áfram sóknaruppbyggingu með miklum hreyfanleika (stimplun)

Markmenn

  • Kenna grunnstöðu og grunnhreyfingar
  • Sérhæfing í tækniþjálfun markvarðar byrjar
  • Markmenn sækja sérstakar markvarðaæfingar utan hefðbundinna æfinga
  • Vinna mikið með staðsetningar og ná grunnstöðunni réttri
  • Liðleikaþjálfun kynnt og mikilvægi hennar haldið að markvörðunum

Líkamleg markmið

  • Sérstök áhersla á hraða, liðleika og tækni
  • Kennsla í grunnstyrktaræfingum með eigin líkamsþyngd

Félagsleg markmið

  • Að hafa æfingar skemmtilegar og fjölbreyttar
  • Að hafa góðan aga á æfingum
  • Að hittast utan æfinga, t.d. á spilakvöldum
  • Að byggja upp sterka liðsheild
  • Að innleiða leiki meistaraflokks karla og kvenna sem skemmtun til að mæta á og þjálfun
  • Axel Örn Sæmundsson
  • Þrymill Þursi Arason
  • Guðfastur Brjánn Pétursson

Nánari upplýsingar um þjálfara flokksins má finna hér